360. spurningaþraut: Tólf spurningar um voðalegt stríð

360. spurningaþraut: Tólf spurningar um voðalegt stríð

Hér er hlekkur frá þraut­ina frá í gær.

***

Þar sem númer þrautar endar á núlli snú­ast allar spurn­ing­arnar um sama efni. Margir hafa komið að máli við mig og beðið um að fá að svara spurn­ingum um fyrri heims­styrj­öld­ina. Og það er hér með látið eftir þeim hinum sömu.

Fyrri auka­spurn­ing:

Í fyrri heims­styrj­öld komu skrið­drekar fyrst fram á sjón­ar­sviðið og sá sem sést á mynd­inni hér að ofan þótti mikil braut­ryðj­enda­smíð. Hvaða þjóð fram­leiddi þennan dreka?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Greifa­dóttir ein frá Baden-Württemberg hét fullu nafni framan af Sophie Maria Jos­ephine Albina Gräfin Chotek von Chotkow und Wognin. Svo bætt­ust ein­hverjir titlar við síðar. Hún dó 28. júní 1914. Hvernig kom and­lát hennar við sögu fyrri heims­styrj­aldar?

2.   Í ágúst 1914 hófu Þjóð­verjar mikla sókn í átt að stór­borg einni og hugð­ust taka hana með einni snöggri atlögu. Frökkum og Bretum tókst að stöðva sókn­ina með því að grafa sig niður í skot­grafir, svo stór­borgin slapp við að vera her­numin. Hvaða borg var þetta?

3.   Hvað hét æðsti höfð­ingi Þjóð­verja í styrj­öld­inni?

4.   Þýska­land var í stríð­inu í nánu banda­lagi við annað stór­veldi í Evrópu. Hvað kall­að­ist það stór­veldi fullu nafni?

5.   En hvað hét flota­mála­ráð­herra Breta í upp­hafi stríðs­ins?

6.   Miklir bar­dagar stóðu árið 1915 um stað­inn Gallipoli. Þar hugð­ust Bretar með hjálp Ástr­al­íu­manna og Ný-Sjá­lend­inga og fleiri klekkja á einni óvina­þjóð sinni í stríð­inu með inn­rás á skaga einn, sem hét og heitir þessu nafni. Í hvaða ríki er Gallipoli?

7.   Árið 1916 var háð mikil orr­usta við Jótland í Danmörku. Hvers konar orr­usta var það?

8.   Snemma árs 1917 var gerð bylt­ing í Rúss­landi. Bráða­birgða­stjórn tók við völdum. Hvað hét karl sá er henni stýrði lengst af?

9.   Þýskur barón að nafni Richthofen var stríðs­hetja mikil í augum Þjóð­verja, en hann lifði reyndar stríðið ekki af. Hvers konar kappi var Richthofen?

10.   Hvar fóru helstu frið­ar­samn­ingar eftir stríðið fram?

***

Seinni auka­spurn­ing:

„Herfylki dauð­ans“ nefnd­ist þessi her­sveit hér að neðan en hún var mynduð í einu stríðs­ríkj­anna árið 1917 og var ein­göngu skipuð konum. Í hvaða ríki var það? (Og nei, þið ættuð ekki að þekkja sögu Her­fylkis dauð­ans. Þið ættuð að þekkja ein­kenn­is­bún­ing­ana og hollníng­una alla.)

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hún var eig­in­kona Franz Ferdin­and erki­her­toga en morðin á þeim urðu til­efni þess að striðið braust út.

2.   París.

3.   Vil­hjálmur 2. keis­ari. Óþarfi er að muna núm­erið hans.

4.   Aust­ur­ríki-Ung­verja­land.

5.   Churchill.

6.   Tyrk­landi.

7.    Sjóorr­usta.

8.   Kerenskí.

9.   Flug­kappi.

10.   Versölum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mark I skrið­drek­inn var fram­leiddur í Bret­landi.

Herfylki dauð­ans var haldið úti í Rúss­landi. Athugið, ekki Sov­ét­ríkj­unum.

***

Og hér er þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár