Óhlýðni er ekki ofbeldi

Anna Lúð­víks­dóttir, fram­kvæmda­stýra Amnesty International á Íslandi, segir lítið þol hjá ráða­mönnum fyrir borg­ara­legri óhlýðni og mót­mælum. Ólafi Páli Jónssyni heim­spek­ingi finnst ámæl­is­vert af Guðrúnu Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra að lýsa því yfir að ef fólk hlýðir ekki skip­unum lög­reglu á mót­mælum séu mót­mælin þar með ekki frið­sam­leg.

Óhlýðni er ekki ofbeldi
Valda­ó­jafn­vægi List­málar­inn Þrándur Þór­ar­ins­son vildi fanga þann óhug sem hann upp­lifði við að sjá myndefni af mót­mælum í Skugga­sundi þar sem lög­reglan beitti að hans mati of miklu valdi gegn mót­mæl­endum.

Frétta­myndir af mót­mælum fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund við Skugga­sund föstu­dag­inn 31. maí vöktu óhug hjá list­mál­ar­anum Þrándi Þór­ar­ins­syni. Um hund­rað manns voru þar sam­an­komin til að mót­mæla aðgerð­ar­leysi íslenskra stjórn­valda vegna þjóð­ar­morðs á palest­ínsku þjóð­inni af hendi Ísrael.

Á mynd af mót­mæl­unum ákvað Þrándur að stilla upp þremur mann­eskjum, tveimur lög­reglu­þjónum og palest­ínskum manni ber­andi palest­ínska fán­ann á meðan hann er úðaður með piparúða. Tveir lög­reglu­menn á móti einum manni sýnir að sögn Þrándar valda­ó­jafn­vægið í gjörn­ingnum. 

Lögreglan beitti piparúða á Palestínumann

Þrándur valdi þetta augna­blik og þennan ramma meðal ann­ars vegna þess að honum fannst fram­koma Qussay Odeh, manns­ins sem bar fán­ann, „hetju­leg“, eins og Þrándur orð­aði það við Heim­ild­ina. „Hann stóð þarna með þennan fána og var með enga ógn­andi til­burði eða neitt þannig við lög­regl­una,“ segir Þrándur og bætir við: „Líka sú stað­reynd að þeir hafi gert þetta við Palest­ínu­mann á meðan það er verið …

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Því miður er stöðugt af styttast í farsímann allstaðar í hinum svokallaða vestræna heimi þar sem aðgerðir ráðamanna eru túlkaðar samkvæmt bókstafnum þvert á digurbarkalegar yfirlýsingar um margtuggið líðræði hérnamegin heimsins.
    0
  • KHS
    Kristín Hildur Sætran skrifaði
    Algjörlega sammála Ólafi Páli „óhlýðni er ekki ofbeldi“. Ég var sjálf fyrir framan Alþingishúsið umrætt kvöld, 12. júní, og þar fór ALLT FRIÐSAMLEGA FRAM, bæði hrópin, hávaðinn þegar slegið var á grindurnar, málningin og blysin. Minnumst þegar borgarar/mótmælendur vernduðu lögregluna fyrir framan Stjórnarráðið á sínum tíma í búsáhaldabyltingunni. Virðum tjáningarfrelsi, virðum sjálfstæða hugsun og virðum hvort annað og vinnum ákveðið gegn því þegar ákveðnir ráðamenn reyna að etja okkur saman. VERJUM TIL HINS ÝTRASTA TJÁNINGARFRELSI OKKAR, grunn samfélagsins. Munum líka að hugsanlega eru einhverjir lögreglumannanna líka sama sinnis og við !!!
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár