Fer í leyfi til þess að geta sinnt aðstoðarmennsku

Tíma­bund­inn aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, Andri Steinn Hilm­ars­son, hefur óskað eftir tíma­bundnu leyfi frá skyldum sínum sem kjör­inn full­trúi í Kópavogi. Í mánuð sat Andri Steinn á báðum stöðum en sam­kvæmt lögum er aðstoð­ar­mönnum óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða nema fyrir þau sé greitt hóf­lega og aðstoð­ar­mað­ur­inn fái sér­staka und­an­þágu.

Fer í leyfi til þess að geta sinnt aðstoðarmennsku
Aðstoð­ar­maður Andri Steinn Hilm­ars­son tekur leyfi frá öðrum störfum á meðan hann starfar fyrir ráð­herr­ann.

Andri Steinn Hilm­ars­son var í mánuð bæði aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og bæj­ar­full­trúi hjá Kópa­vogsbæ. 

Hann hefur nú óskað eftir tíma­bundnu leyfi frá skyldum sínum sem kjör­inn full­trúi í Kópavogi. „Það tekur bæði til bæj­ar­stjórnar og nefnda sem ég sit í á vegum bæj­ar­ins,“ segir Andri í tölvu­pósti til Heim­ild­ar­innar. 

Áður hafði verið óskað eftir áliti frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu vegna ráðn­ingar hans.

Samkvæmt lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands kemur fram að störf aðstoð­ar­manna ráð­herra telj­ist full störf og að þeim sé óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða, nema fyrir því fáist sér­stök und­an­þága.

Andri Steinn hóf störf sem aðstoð­ar­maður 12. maí en það var til­kynnt 5. júní síð­ast­lið­inn, degi eftir að Heim­ildin sendi ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn um ráðn­ing­una. Hún er tíma­bundin en Andri er að leysa Eydísi Örnu Líndal af á meðan hún er í barn­eign­ar­leyfi. 

Andri Steinn fór í leyfi frá þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins sama dag og hann tók við starfi aðstoð­ar­manns Áslaugar Örnu. Hann hverfur aftur þangað þegar tíma­bundnu aðstoð­ar­manns­starf­inu er lokið, sam­kvæmt skrif­legu svari hans til Heim­ild­ar­innar. Aftur á móti var Andri Steinn enn bæj­ar­full­trúi og full­trúi í bæjar- og skipu­lags­ráði hjá Kópa­vogsbæ þegar Heim­ildin sendi honum fyr­ir­spurn um það í lok síð­ustu viku. Í tölvu­pósti á mið­viku­dag sagð­ist hann svo hafa óskað eftir tíma­bundnu leyfi frá „skyldum mínum sem kjör­inn full­trúi í Kópavogi“.

Dómgæsla og stjórnarseta í stjórn UN Women leyfileg

Ráðherra getur veitt und­an­þágu frá lögum um að aðstoð­ar­mönnum sé óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða „ef fyr­ir­hugað auka­starf telst til mann­úð­ar­starfa, kennslu- eða fræði­starfa, vís­inda­rann­sókna, list­sköp­unar eða ann­arra og til­fallandi starfa svo fremi að það hafi ekki áhrif á störf við­kom­andi í Stjórn­ar­ráði Íslands og greiðslur fyrir auka­störfin telj­ast innan hóf­legra marka“.

Fastar mán­að­ar­legar greiðslur til Andra vegna setu í bæj­ar­stjórn voru 28 pró­sent af þing­far­ar­kaupi, eða um 410.000 krónur, og greiðslur fyrir setu í bæj­ar­ráði um 30 pró­sent af þing­far­ar­kaupi, eða um 440.000 krónur. Mán­að­ar­laun aðstoð­ar­manna ráð­herra voru í fyrra yfir 1,5 millj­ónir.

Ekkert er kveðið á um það í lög­unum hvað nákvæm­lega telst til hóf­legra greiðslna og þar er jafn­framt ekki tekið fram hvort póli­tísk störf geti fengið und­an­þágu. Fyrri auka­störf sem aðstoð­ar­menn hafa fengið und­an­þágu fyrir eru ann­ars vegar stjórn­ar­seta í stjórn lands­nefndar UN Women á Íslandi, en það var ólaunað starf, og hins vegar dóm­gæsla á vegum Körfuknatts­leiks­sam­bands Íslands.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár