Rannsókn lögreglu beinist að tvíburabræðrum

Tvíbura­bræður voru hand­teknir í tengslum við umfangs­mikla rannsókn lögreglu, vegna gruns um aðild að umfangs­miklu fíkniefna­máli og peninga­þvætti. Hér er félaga­rekstur þeirra bræðra kort­lagður.

Umsvifamikil rannsókn lögreglu
Umsvifa­mikil rann­sókn lög­reglu Lögregla rann­sakar nú umsvifa­mikið pen­inga­þvættis- og fíkni­efna­brota­mál sem teng­ist rekstri félags í bygg­ing­ar­iðn­aði. Margeir Sveins­son, lög­reglu­full­trú­inn á mynd­inni segir rann­sókn máls­ins tengj­ast skipu­lagðri brota­starf­semi. Tví­bura­bræður voru hand­teknir og færðir í gæslu­varð­hald vegna gruns um aðild að mál­inu. Tví­bura­bræð­urnir sjálfir eru ekki birtir á sam­settu mynd Stund­ar­innar.

Tvíbura­bræðurnir eru grunaðir um aðild að umfangs­miklu fjársvika- og fíkniefna­máli sem lögreglan hefur til rann­sóknar. Bræðurnir eru fæddir árið 1994 og reka fyrir­tækið EJ Bygg, þar sem húsleit var gerð á dögunum. 

Lögmaður annars þeirra, stað­festir í samtali við Stundina að hann hafi verið hand­tekinn vegna málsins, sem fyrst var fjallað um í Frétta­blaðinu í lok mars.

Margeir Sveinsson yfir­lögreglu­þjónn sagði í samtali við Frétta­blaðið að um skipulagða brota­starfsemi væri að ræða og grunur léki á um að fyrirtæki hér á landi kynnu að hafa stundað peninga­þvætti sem tengdust meðal annars innflutningi, sölu, dreifingu og fram­leiðslu á sterkum fíkni­efnum ásamt fjármuna­brotum og þjófnaði. Á annan tug manna eru með réttar­stöðu sakbornings. Í samtali við Stundina segir Margeir að rannsókn málsins snúi meðal annars að fasteigna­viðskiptum.

Bræðurnir voru hand­teknir þann 12. mars síðastliðinn, annar á Grinda­víkurvegi og hinn í námunda við Akureyri. Lögmaðurinn stað­festir að lögreglan hafi lagt …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Peningaþvætti á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár