Páskaþraut nr. 1

Sérstök spurninga­þraut í tilefni af páskum, fyrri hluti

Í tilefni af páskum verða birtar tvær spurninga­þrautir aukalega. Hér er sú fyrri, hin birtist á páskadag. En hérna er hin vanalega þraut dagsins!

En hér er síðari páskaþrautin!

Auka­spurningarnar eru báðar um leikara í hlutverki Jesúa frá Nasaret. Hver leikur Jesúa á myndinni hér að ofan? Hún er úr myndinni The Greatest Story Ever Told frá 1965.

***

Aðal­spurningar snúast allar um málverk sem myndlistar­menn hafa málað af Jesúa. Eða réttara sagt níu málverk og eina höggmynd.

1.   Hver málaði þessa mynd hér?

***

2.   Hver málaði þennan Jesúa hér?

***

3.   En hver festi þennan Jesúa á striga?

***

4.   Og hver málaði þennan sigur­glaða Jesúa?

***

5.   Og hver málaði þennan óvenju­lega kross?

***

6.   Hér er nokkuð óvenju­legur Jesúa/Krists­mynd við kvöld­máltíðina. En hver málaði?

***

7.   Og hér er nokkuð óvenjuleg mynd af kross­festingunni frá 1930. Hver málaði?

***

8.   Þessi var máluð í nokkrum útgáfum um miðja 17. öld og kölluð „Höfuð Krists“. Hver málaði?

***

9.   Þessi stælti Kristur var mótaður í marmara af frægum myndlistar­manni. Styttan var allsber með typpi og öllu saman, svo ég birti það ekki hér. En hver var sem sagt myndlistar­maðurinn?

***

10.   Að lokum: Ég viðurkenni að tíunda lista­manninn þekkja líklega ekki mjög margir með nafni. En hver var hann sem sagt?

***

Seinni auka­spurning: Hver er á myndinni hér að neðan í hlutverki Jesúa frá Nasaret í myndinni Last Days in the Desert frá 2015?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.   Gauguin.

2.   Leonardo da Vinci.

3.   El Greco.

4.   Baltasar. Þetta er altaris­tafla Víði­staðakirkju.

5.   Dali.

6.   Kahlo.

7.   Picasso.

8.   Rembrandt.

9.   Michelangelo.

10.   Grünewald. Hér segir af honum.

***

Auka­spurningar:

Á efri myndinni er Mad von Sydow, en á þeirri neðri Ewan McGregor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár