Sigurður Ingi Þórðarson, eða Siggi hakkari eins og hann er oftast kallaður, hefur verið skráður fyrir fjölda fyrirtækja hér á landi sem hafa orðið gjaldþrota. Flest þessara félaga eignaðist Sigurður eingöngu nokkrum mánuðum áður en þau voru á leið í þrot. Langflest félaganna áttu það einnig sameiginlegt að rekstrarstaða þeirra var afskaplega veik þegar Sigurður Ingi tók við rekstri þeirra. Eftir að Sigurður Ingi tók við rekstri félaganna byrjaði hann að nota þau til að svíkja tugi milljóna króna úr íslenskum fyrirtækjum. Þá er hann einnig skráður fyrir fjöldanum öllum af félagasamtökum sem hann hefur notast við til að svíkja milljónir króna úr íslenskum fyrirtækjum. Í síðasta tölublaði Stundarinnar játaði Sigurður Ingi fyrir blaðamanni að eini tilgangur þessara félaga, og félagasamtaka, væri að svíkja fé út úr íslenskum fyrirtækjum. Heildarþrot þeirra félaga sem Sigurður Ingi hefur stýrt er yfir 315 milljónir króna. Af því eru 113 milljóna skuld við ríkissjóð …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir