341. spurningaþraut: Hér er nú aldeilis margt í mörgu, eins og Stuðmenn segja

341. spurningaþraut: Hér er nú aldeilis margt í mörgu, eins og Stuðmenn segja

Þraut gær­dags­ins um Kína.

***

(Hér er svo auka-þraut í til­efni páskanna.)

***

Auka­spurn­ingar eru tvær að þessu sinni. Sú fyrri á við mynd­ina hér að ofan. Spurn­ingin er ein­föld: Hvað kallar hún sig, konan á mynd­inni?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvers konar tól eða tæki var kallað „Excalibur“?

2.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Havana?

3.   Aðeins eru 50-60 kíló­metrar í beinni loft­línu milli tveggja höf­uð­borga í Evrópu. Hverjar eru þær?

4.   Ein öld mann­kyns­sög­unnar er iðu­lega nefnd „upp­lýs­inga­öldin“. Hvaða öld er það?

5.   Neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi eru í fjórum borgum Bret­landseyja. London er ein þeirra og Glasgow önnur. Hverjar eru hinar tvær? Hafa verður báðar réttar!

6.   Hvaða leik­stjóri gerði þrjár langar og miklar kvik­myndir eftir Hringa­drott­ins­sögu, eða The Lord of the Rings?

7.   Eitt af hinum sjö undrum forn­aldar voru svo­kall­aðir „hengi­garðar“ í hvaða borg?

8.   Leik­tíð­ina 1982-83 var ungur fót­bolta­maður á snærum Manchester United og spil­aði einn leik fyrir liðið — í deild­ar­bik­arnum. United hafði ekki trú á honum og hann hélt á brott. Seinna á ferl­inum spil­aði hann m.a. fyrir Liverpool, Everton og Manchester City og er eini fót­bolta­karl­inn sem spilað hefur fyrir öll þessi fjögur lið. Hvað heitir hann?

9.   Hvað heitir fullu nafni algeng­asta teg­undin af sóley á Íslandi?

10.   Hvaða ár voru Sov­ét­ríkin lögð niður?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Á mynd­inni hér að neðan er kona sem var skipuð kennslu­stjóri við Háskóla Íslands árið 1994. Þá birt­ist þessi mynd í Morg­un­blað­inu. Hvað heitir konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Sverð.

2.   Kúba.

3.   Vín­ar­borg (Aust­ur­ríki) og Brat­islava (Slóvakíu).

4.   Átjánda öldin.

5.   Liverpool og Newcastle.

6.   Peter Jackson.

7.   Babýlon.

8.   Peter Beardsley.

9.   Brenni­sóley.

10.   1991.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Lana del Rey.

Á neðri mynd­inni er Svandís Svav­ars­dóttir.

***

Og aftur hlekkur á þraut gær­dags­ins um Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár