Brennisteinslykt í Grindavík og Reykjanesbrautinni lokað: „Einhvern veginn er þetta loksins komið“

Reykja­nes­braut­inni er lokað vegna ágangs áhuga­samra og var­úð­ar­ráð­stafna vegna eld­goss.

<span>Brennisteinslykt í Grindavík og Reykjanesbrautinni lokað:</span> „Einhvern veginn er þetta loksins komið“
Grinda­vík Mynd sem barst frá íbúa í Grinda­vík. Mynd: Guðbjartur Agnarsson

Brenni­steins­lykt finnst nú í Grinda­vík og almanna­varnir beina því til íbúa í Þor­láks­höfn að loka gluggum og hækka hita í húsum vegna þess að búast megi við gasmengun í bænum.

Hraun er nú farið að flæða til suð­urs og vest­urs frá eld­gos­inu sem hófst í kvöld á sprungu á tveimur eða fleiri stöðum í Geld­ingagald við Fagra­dals­fjall. Lítill gos­órói finnst, sem þykir óvenju­legt.

Sig­ur­björg Vign­is­dóttir, íbúi í Grinda­vík, segir að eld­gosið veki með henni und­ar­legar til­finn­ingar. „Í kvöld byrj­aði að gjósa í Geld­inga­gjölu en ekki á þeim stað þar sem vís­inda­menn höfðu búist við. Einhvern veg­inn er þetta loks­ins komið, á sama tíma hélt ég samt að þetta myndi aldrei ger­ast. En ég hef aldrei verið hrædd, hvorki við jarð­skjálft­ana né við að það byrji að gjósa, en ég veit að það er fullt af fólki í kringum mig sem er skít­hrædd.“ 

Hún segir að stemm­ingin í Grinda­vík sé mis­góð. „Hér er mikil spenna og for­vitni, sumir eru hræddir en öðrum þykir þetta spenn­andi. Það er ákveð­inn léttir að gosið sé hafið og ég segi það í von um að skjálftar muni þá róast.“

Hún segir að nú sé mik­ill reit­ingur í bænum. „Fólk flykk­ist út að skoða eld­gosið og reyna að fá góðar myndir og mynd­bönd. Gosið sést vel frá Grinda­vík og er eins og fal­legt sól­setur. Það er ein­stak­lega gott skyggni svo að þetta sérst allt mjög vel.“

Sig­ur­björg segir jafn­framt að það sé gríð­ar­leg mikil ásókn í að kom­ast út á Reykja­nesið núna úr Reykja­vík. „Vinkona mín þurfti að berj­ast við að kom­ast til Grinda­víkur úr bænum. Braut­inni var lokað frá Straums­vík.“

Örtröð á Reykja­nes­braut

Reykjanesbrautinni lokað

Íbúi í Reykja­nesbæ sem hringdi inn í útsend­ingu Rúv kvartar undan því að Reykja­nes­brautin sé lokuð og fólk kom­ist ekki heim til sín.

„Þetta er bara fárán­legt. Þetta er bara kol­vit­laust fólk sem er að reyna að mynda ein­hvern bjarma. Brautin er stífluð af for­vitnu fólki og heima­menn kom­ast ekki heim til sín,“ sagði mað­ur­inn, sem þurfti að hverfa frá vegna lok­unar. „Það er ekk­ert betra að vera í bíl­unum sínum í gasmengun af eld­gosi.“

Eldgosið í Geld­ing­ar­dal við Fagra­dals­fjall.
Eld­tungurHér má sjá eld­tungur úr gos­inu.

Léttir að gosið sé hafið

Undir það tekur Ingi­bergur Þór Jónasson, sem býr einnig í Grinda­vík. Hann náði þessum myndum þar sem sést í eld­tungur um ell­efu­leytið í kvöld, þegar hann keyrði inn eftir Suð­ur­stranda­vegi í átt að Fest­is­fjalli. Á heim­leið lenti hann í umferð­ar­þunga og segir að á Grind­ar­vík­ur­vegi sé bíll við bíl alla leið­ina, bílum lagt í kant við Seltjörn og mikil ásókn sé í að kom­ast út á Reykja­nes. 

Hann segir ákveð­inn létti fylgja því að gosið sé hafið. „Þetta er búið að vera hel­víti hér und­an­farna daga og ekk­ert hægt að sofa vegna skjálft­anna. Und­an­farna daga hefur verið óþægi­lega rólegt því ég trúði aldrei öðru en að það myndi byrja að gjósa að lokum.“ Hann hafi ótt­ast að þetta væri lognið á undan storm­inum, hvort það væri von á stórum skjálfta eða eld­gosi. „Á sama tíma finnst mér þetta spenn­andi, ég elska nátt­úr­una og elska að taka myndir og treysti því að okkur stafi engin ógn af eld­gos­inu.“

Í skjálfta­hrin­unni hafi á einum tíma­punkti liðið tæpir þrír sól­ar­hringar þar sem hann náði ekki meira en tveimur og hálfum tíma í svefni. „Samt búum við í nýju og sterku húsi sem fór ekk­ert af stað. Þetta var bara komið svo nálægt okkur. Stóri skjálft­inn um dag­inn var nán­ast undir hús­inu mínu.“

Sér eldgosið úr bakgarðinum

Sólný Páls­dóttir, sem býr við jaðar byggð­ar­innar í Grinda­vík, seg­ist hafa verið að horfa á sjón­varpið þegar bjarmi kom upp á himn­inum.

„Við erum alveg róleg. Ekkert drama. En ég er samt að bíða eftir að heyra frétt­irnar. Það er útsýnis­pallur af svöl­unum hjá mér þar sem ég get séð þetta vel. Þetta er í bak­garð­inum mínum, nán­ast.“

Sólný segir síð­ustu vikur hafa verið erf­iðar. Hún upp­lifir óþæg­indi en ekki ógn. „Ég treysti því sem fræði­menn segja að þetta eigi ekki að ógna byggð. Þetta virð­ist ekki ætla að ógna byggð­inni. Ég held að ég þurfi ekki að pakka, eða alla­vega vona ekki. Vonandi er þetta bara smá­spreng­ing og allir öruggir. Það er nátt­úru­lega málið. Miðað við þessa skjálfta hefur maður verið að bíða eftir þessu. Fyrir þá sem upp­lifa þessa skjálfta er þetta svo mikið álag á tauga­kerfið. Þetta er kannski ekki ógn­vekj­andi, en þetta er óþægi­lega nálægt. Ég er ekki hrædd. Maður er kannski meira í smá ójafn­vægi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár