338. spurningaþraut: Álfur á Akureyri, skáldkonan Rósa, Vestfjarðagöng og fleira

338. spurningaþraut: Álfur á Akureyri, skáldkonan Rósa, Vestfjarðagöng og fleira

Hér er þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan hér að ofan hét Irma Grese. Var hún dóm­ari í skauta­keppni (og því með þetta númer á lofti) eða hvað á þetta númer að þýða? Hvert er sem sagt hennar til­kall til frægðar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað þýðir franska hug­takið „Coup de grâce“ sem notað er í mörgum tungu­málum?

2.   Hver skrif­aði leik­ritið Dagur vonar sem frum­sýnt var árið 1987?

3.   Vest­fjarða­göng tengja kaup­stað­inn Ísafjörð við tvo firði fyrir vestan. Hvaða firðir eru það?

4.   Skáld­konan Rósa Guð­munds­dóttir (1795-1855) gekk bæði meðan hún lifði og síðan undir tveim við­ur­nefnum. Hver voru þau? Og já, þið þurfið að þekkja bæði.

5.   Hvaða álfur gengur ljósum logum um leik­svið á Akureyri um þessar mundir?

6.   Árið 1987 átti að slátra kúnni Hörpu fyrir vestan en hún stökk út í sjó og komst undan á sundi. Hún fékk þá að lifa og fékk í leið­inni nýtt nafn. Hvað var hún kölluð eftir þennan atburð?

7.   Hvað hét fyrsti gervi­hnöttur Sov­ét­ríkj­anna?

8.   En fyrsti gervi­hnöttur Banda­ríkj­anna?

9.   Frá hvaða landi kemur hið vin­sæla súkkulaði Prins Póló?

10.   Hvað heitir víð­áttu­mik­ill fló­inn út í Atl­ants­hafið milli Frakk­lands og Spánar? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða eld­fjall gýs á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Náð­ar­högg — yfir­leitt notað um síð­asta höggið sem ein­hver aðfram­kom­inn fær og bindur í raun endi á þján­ingar við­kom­andi.

2.   Birgir Sig­urðs­son.

3.   Önund­ar­fjörð og Súg­anda­fjörð.

4.   Vatns­enda-Rósa og Skáld-Rósa.

5.   Benedikt búálfur. Samnefnt barna­leik­rit er nú sýnt af Leik­fé­lagi Akur­eyrar.

6.   Sæunn.

7.   Sputnik.

8.   Explorer.

9.   Póllandi.

10.   Biscaya-flói.

***   

Svör við auka­spurn­ingum:

Irma Grese var fanga­vörður í fanga­búð­unum Ravensbrück, Auschwitz og Bergen-Belsen í síð­ari heims­styrj­öld. Myndin er tekin þegar hún var leidd fyrir rétt eftir stríðið. Hún var tekin af lífi fyrir marg­vís­lega glæpi og ofbeldi gegn föngum. Ekki þarf að nefna réttar fanga­búðir, en „þýskar fanga­búðir“ verður að koma fram í svar­inu.

Á neðri mynd­inni gýs Hekla. Þetta er mynd af gos­inu 1947 en ekki er nauð­syn­legt að ártalið fylgi.

***

Og hér er aftur þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár