337. spurningaþraut: Michelin-stjörnur, úlfabaunir, Ástrós og Kópavogskróníka

337. spurningaþraut: Michelin-stjörnur, úlfabaunir, Ástrós og Kópavogskróníka

Gær­dags­þrautin.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Lítið á mynd­ina hér að ofan. Hver syngur þar af slíkri inn­lifun?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða ríki var hið vold­ug­asta í Suður-Ameríku um 1500?

2.   Hvaða borg í Banda­ríkj­unum fór illa í jarð­skjálftum árið 1906?

3.   Úlfa­baunir heitir planta ein sem nokkuð umdeild er á Íslandi en við þekkjum hana þó betur undir öðru nafni. Hvaða nafn er það?

4.   Hverjir töp­uðu orr­ustu þar sem heitir Dien Bien Phu árið 1954?

5.   Hver syngur með Bubba Morthens í lag­inu Ástrós sem út kom í byrjun mars?

6.   Hvað fékkst Þjóð­verj­inn Rainer Werner Fass­binder við kringum 1980?

7.   Árið 1852 stofn­uðu þeir Daniel Baird Wesson og Horace Smith fyr­ir­tæki í Connecticut í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið gekk í gegnum nokkra byrj­un­arörð­ug­leika en fór svo brátt að ná miklum árangri. Hvað fram­leiddi fyr­ir­tæki þeirra félaga?

8.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Eist­landi?

9.   Meðal eig­enda mat­sölu­húsa þykir fátt eft­ir­sókn­ar­verð­ara en fá stjörnur frá fyr­ir­tæk­inu Michelin. Mest er hægt að fá þrjár stjörnur. Hve mörg veit­inga­hús í heim­inum ætli séu með þrjár Michelin-stjörnur? Eru það 37 veit­inga­hús, 137 veit­inga­hús, 237 veit­inga­hús, 337 veit­inga­hús, 437 veit­inga­hús eða 537 veit­inga­hús?

10.   Kópa­vogskróníka heitir leik­rit sem nú er sýnt í Þjóð­leik­hús­inu, byggt á skáld­sögu. Hver skrif­aði skáld­sög­una?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Lauf af hvaða trjám má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ríki Inka.

2.   San Francisco.

3.   Lúpína.

4.   Frakkar.

5.   Bríet.

6.   Hann var kvik­mynda­leik­stjóri.

7.   Byssur.

8.   Tallin.

9.   Veit­inga­húsin eru 137 (þegar síð­ast frétt­ist).

10.   Kamilla Ein­ars­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni syngur Magga Stína á ljós­mynd Sig­tryggs Ara.

Á neðri mynd­inni má sjá eik­ar­lauf.

***

Og loks aftur gær­dags­þrautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár