329. spurningaþraut: Ostur, trúarsöngvar og tímabundið dýr

329. spurningaþraut: Ostur, trúarsöngvar og tímabundið dýr

Gær­dags­þrautin, hlekkur á hana.

***

Auka­spurn­ing, sú hin fyrri, er á þessa leið:

Dýrið á mynd­inni hér að ofan er útdautt. Manns­myndin er í hlut­falls­lega réttri stærð. En hvað nefnum við þetta dýr?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Daenerys Tar­g­ar­yan — hvar er hana að finna?

2.   Ágúst Ævar Gunn­ars­son var trommu­leik­ari í hljóm­sveit einni frá stofnun hennar 1994. Hann spil­aði á fyrstu plötu hljóm­sveit­ar­innar, sem þótti ágætis byrjun, en síðan tók annar maður við trommu­kj­uð­unum. Hvaða hljóm­sveit er hér um að ræða?

3.   Sagan um Lísu í Undra­landi hefst á því að hún liggur og dormar í góða veðr­inu þegar dýr nokk­urt hleypur fram­hjá, dregur upp úr og lítur á það, um leið og dýrið segir áhyggju­fullt: „Almátt­ugur, almátt­ugur, ég verð of seinn!“ Hvaða dýr er þetta?

4.   Árið 1979 kom tón­list­ar­maður nokkur vestan hafs aðdá­endum sínum á óvart með því að gefa út plöt­una Slow Train Coming. Á henni voru trú­ar­söngvar en tón­list­ar­mað­ur­inn hafði ekki samið slíka söngva áður, heldur var kunn­ari fyrir mót­mæla­söngva og inn­hverfa ást­ar­söngva. Á eftir fylgdu tvær plötur í við­bót með trú­ar­söngvum — Saved og Shot of Love — en síðan lagði tón­list­ar­mað­ur­inn trú­ar­söngva á hill­una og tók aftur upp fyrri háttu. Hvaða mús­í­k­ant er þetta?

5.   Lotu­kerfið er skrá yfir frum­efni. Hversu mörg eru þau? Hér má muna þremur til eða frá.

6.   Hvað eiga þessi 14 Evr­ópu­ríki sam­eig­in­legt: Andorra, Aust­ur­ríki, Bélarus, Liechtenstein, Lux­emburg, Moldova, Norður Makedónía, San Marino, Serbía, Slóvakía, Sviss, Tékkland, Ung­verja­land og Vatíkanið? 

7.   Hversu margar mín­útur tekur venju­legur keppn­is­leikur í fót­bolta karla?

8.   En kvenna?

9.   Hversu mörg hólf eru í hjarta manns­ins?

10.   Hvað er svo­kall­aður „Blue Cheese“ (á ensku) kall­aður á íslensku?

***

Auka­spurn­ing, sú hin seinni, er á þessa leið:

Hvað heitir ávöxt­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Í bókum og sjón­varps­þáttum um Krúnu­leik­ana, Game of Thrones.

2.   Sigur Rós.

3.   Kanína.

4.   Bob Dylan.

5.   Frum­efnin eru 118, svo rétt telst vera allt frá 115 til 121.

6.   Þau eru land­lukt.

7.   Níutíu mín­útur.

8.   Níutíu mín­útur líka.

9.   Fjögur.

10.   Gráð­ostur eða gráða­ostur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er risa­leti­dýr sem búsett var í Mið- og Norður-Ameríku.

Á neðri mynd­inni er mangó.

***

Gær­dags­þrautin, hlekkur á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár