323. spurningaþraut: drykkfelldur, geðstirður, sjálfhverfur, illskeyttur og ofstopafullur vísindamaður. Hver þekkir hann?

323. spurningaþraut: drykkfelldur, geðstirður, sjálfhverfur, illskeyttur og ofstopafullur vísindamaður. Hver þekkir hann?

Já, þrautin í gær!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Það verður að við­ur­kenn­ast að hún er ekki fyrir ungt fólk. En þau sem komin eru nokkuð á miðan aldur og það af lengra, þau er von­andi óhætt að spyrja: Hver er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Vís­inda­mað­ur­inn Sanchez býr hjá Beth Smith dóttur sinni og Jerry eig­in­manni hennar. Sanchez er drykk­felldur, geð­stirður, sjálf­hverfur, ill­skeyttur, ofstopa­fullur og alveg ódrep­andi dóni. Hann fer gjarnan í ferða­lög um geim­inn og aðrar víddir með dótt­ur­syni sínum, sem er prúður piltur en þó lít­ill eft­ir­bátur afa sínum í ævin­týr­unum. Um er að ræða vin­sæla teikni­mynda­seríu sem heitir eftir fornöfnum Sanchez vís­inda­manns og dótt­ur­sonar hans. Og ser­ían heitir þá ...?

2.   Síðari heims­styrj­öldin hófst 1939 þegar Þýska­land og síðar Sov­ét­ríkin réð­ust á ... hvaða land?

3.   Frakkar gerðu síðan mála­mynda­inn­rás í Þýska­land en sú aðgerð var öll í skötu­líki. En hvaða land var því næst ráð­ist á í styrj­öld­inni?

4.   Íslenskur rit­höf­undur gekk á fund Hitlers og spjall­aði við hann á útmán­uðum 1940. Því miður fékkst rit­höf­undur þessi aldrei til að lýsa fund­inum með þýska for­ingj­anum. En hver var rit­höf­und­ur­inn?

5.   Audrey Tatou heitir frönsk leik­kona, hálf­fimmtug núna. Árið 2001 sló hún í gegn í afar kostu­legri bíó­mynd, þar sem hún lék einkar lífs­glaða stúlku sem er ákveðin í að gera sem flesta í kringum sig ham­ingju­sama og ánægða. Og myndin jók alla­vega ánægju flestra sem hana sáu. Hún hét eftir per­són­unni sem Tatou lék, það er að segja ...?

6.   Hver er stærsta eyjan sem til­heyrir Frakk­landi?

7.   Hinir svoköll­uðu kóala­birnir eru snotrir og sætir og huggu­legir og margt fleira, en eitt eru þeir þó alls ekki. Hvað er það?

8.   Hvar búa kóala­birn­irnir?

9.   „Allt uns fest­ing brestur“ heitir bók með trú­ar­ljóðum undir drótt­kvæðum hætti sem prestur einn hefur nýlega gefið út. Hver er prest­ur­inn?

10.   Í hvaða firði eru Æðey og Vigur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fræga fjall er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Rick and Morty.

Rick afi og Morty dótt­ur­sonur hans

2.   Pólland.

3.   Finnland.

4.   Gunnar Gunn­ars­son.

5.   Amélie.

6.   Korsíka.

7.    Birnir. Þeir eru alls óskyldir björnum, enda poka­dýr.

8.   Ástralíu.

9.   Davíð Þór Jónsson.

10.   Ísa­fjarð­ar­djúpi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er spari­bauk­ur­inn Trölli.

Skoðið endi­lega hina glæsi­legu sjón­varps­aug­lýs­ingu sem sjá má hér til hliðar (eða ofan eða neðan eða ein­hvers staðar ann­ars staðar ef þið eruð að skoða þetta í síma!).

Á neðri mynd­inni er Hekla.

***

Og já, þrautin í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár