322. spurningaþraut: Böddi Steingríms fegurðardrottning og fótboltamaður fer snemma í rúmið

322. spurningaþraut: Böddi Steingríms fegurðardrottning og fótboltamaður fer snemma í rúmið

Hér er hlekkur og er klikkað er á hann birt­ist þrautin síðan í gær!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði svefn­her­bergið sitt eins og sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.    Böddi Stein­gríms var blogg­ari sem þótti „of gáf­aður fyrir Krókinn, of reiður fyrir Reykja­vík og of hrein­skil­inn fyrir Ísland“, eins og segir á einum stað. Enda fór allt í hundana hjá honum að lokum! Hvar má lesa um Bödda Stein­gríms?

2.   „Ég er feg­urð­ar­drottn­ing / og brosi gegnum tárin.“ Hver söng?

3.   Jóhannes Eðvalds­son fót­bolta­maður dó á dög­unum. Hann fór víða á ferli sínum en er frægastur fyrir að spila af miklum dugn­aði fyrir fót­boltalið eitt í Glasgow á Skotlandi. Hvaða lið var það?

4.   „Sú var tíðin að ég fór oft­ast snemma í rúmið.“ Þannig hefst fræg frönsk skáld­saga, gríð­ar­langt verk í mörgum bindum, sem byrj­aði að koma út 1913. Þar er fjallað á einkar nær­fær­inn (og orð­margan) hátt um end­ur­minn­ingar og eft­ir­sjá enda heitir bókin À la recherche du temps perdu, sem Pétur Gunn­ars­son þýddi sem Í leit að glöt­uðum tíma. En hvað hét höf­und­ur­inn sem fór oft­ast snemma í rúmið?

5.   Hvað kall­ast skíða­svæðið við Akureyri?

6.   Hverjir átt­ust aðal­lega við í hund­rað ára stríð­inu 1337 til 1453?

7.   „The imm­unity is back up for grabs. — Frið­helgi er aftur orðin keppi­kefli.“ Í hvaða banda­rísku raun­veru­leika­þáttum — sem þegar eru komnar 40 ser­íur af — er þetta lyk­il­setn­ing?

8.   Hvar var biskup Íslands á undan Agnesi núver­andi bisk­upi?

9.   Í hvaða ríki er höf­uð­borgin Lima?

10.   39529 Vatna­jök­ull, 85095 Hekla og 110299 Iceland eru svo sann­ar­lega ekki jök­ull, eld­fall og eylandið okkar, heldur fjar­læg nátt­úru­fyr­ir­bæri af allt öðru tagi. Hvaða fyr­ir­bæri bera þessi nöfn og númer? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þarna má sjá leikkon­urnar Kristen Stewart og Jodie Foster í kvik­mynd David Finchers frá 2002. Þær leika mæðgur. Móðirin grípur til örþrifa­ráða til að vernda sig og dótt­ur­ina undan glæpa­mönnum. Hvað heitir myndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Í Roklandi Hall­gríms Helga­sonar.

2.   Ragn­hildur Gísla­dóttir.

3.   Celtic.

4.   Proust.

5.   Hlíð­ar­fjall.

6.   Bretar og Frakkar.

7.   Survivor.

8.   Karl Sig­ur­björns­son.

9.   Perú.

10.   Þetta eru smá­stirni úti í geimnum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndina af svefn­her­berg­inu mál­aði Van Gogh.

Bíó­myndin hét Panic Room.

***

Já, eins og fyrir töfra birt­ist hér hlekk­ur­inn á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár