309. spurningaþraut: Katrínar, sjómílur, jökull og Halla Signý

Þið finnið þraut­ina frá í gær hér.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar voru — eftir því sem best er vitað — aðal bæki­stöðvar þeirrar menn­ingar sem skóp mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hinrik 8. Eng­land­s­kóngur átti fleiri eig­in­konur en algengt er um evr­ópska kónga. Hve margar?

2.   Hve margar þeirra hétu Katrín?

3.   Og fyrst við erum á þessum slóðum: Hvað hét fyrsti kóng­ur­inn (af Stuart-ætt) sem ríkti bæði yfir Englandi og Skotlandi?

4.   Hvað heitir heima­völlur karla­liðs fót­bolta­fé­lags­ins Liverpool á Englandi?

5.   Enn tíðkast furðu víða að reikna fjar­lægðir á sjó í sjó­mílum en ekki kíló­metrum. Hvað er ein sjó­míla í kíló­metrum? Hér má skeika 200 metrum til eða frá.

6.   Árið 1987 hóf göngu sína í amer­ísku sjón­varpi skemmti­þátt­ur­inn The Tracy Ullmann Show. Hann gekk í þrjú ár við þokka­legar vin­sældir. Hins vegar er þátt­ar­ins nú aðal­lega minnst vegna þess að þar birt­ust fyrst stuttir sketsar, sem voru — eftir að The Tracy Ullmann Show hætti — þró­aðir áfram og úr varð enn vin­sælli skemmti­þátta­röð. Hvað heitir sú?

7.   Hver er næst stærsti jök­ull á Íslandi á eftir Vatna­jökli?

8.   Hvað hét stjórn­mála­flokk­ur­inn sem Vil­mundur Gylfason stofn­aði árið 1983?

9.   Hvað heitir höf­uð­borg Víetnam?

10.   Halla Signý Krist­jáns­dóttir er þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í ... hvaða kjör­dæmi?

*** 

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist dýrið sem sést á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Sex.

2.   Þrjár — Katrín af Aragón, Katrín Howard, Katrín Parr.

3.   Jakob, eða James á ensku.

4.   Anfield.

5.   Sjómíla er rétt rúm­lega einn 1,8 kíló­metri svo rétt skal hér talið allt frá 1,6—2.

6.   The Simpsons.

7.   Lang­jök­ull.

8.   Bandalag jafn­að­ar­manna.

9.   Hanoi.

10.   Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Svarið við þeirri fyrri er Krít. Grikk­land er ekki nóg.

Svarið við þeirri síð­ari er sleggju­háfur. Reyndar ætla ég af mínu snotra hjarta­lagi að dæma „hákarl“ nægj­an­legt.

***

Þið finnið þraut­ina frá í gær líka hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár