306. spurningaþraut: Tungumálin oromo og amharíska, hvar eru þau töluð?

306. spurningaþraut: Tungumálin oromo og amharíska, hvar eru þau töluð?

Gær­dags­þrautin, hér.

***

Auka­spurn­ing:

Í hvaða borg er sú hin lit­ríka brú er hér að ofan sést?

***

1.   Í hvaða landi var Bismarck helstur valda­maður 1871-1890?

2.   Í hvaða landi er Chernobyl?

3.   Hver keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision bæði 1999 og 2005?

4.   Hvaða þjóð varð heims­meist­ari í fót­bolta karla árið 1970 eftir að hafa unnið Ítali 4-1 í ein­hverjum best spil­aða úrslita­leik sög­unnar?

5.   Hvað gerði Gudrun Ensslin sér til frægðar laust upp úr 1970?

6.   Hvað heitir rit­stjóri vefrits­ins Kjarnans?

7.   Skúmur heitir fugl einn íslenskur. Hverjir eru nán­ustu frændur hans og frænkur hér á landi?

8.   Með hvaða hljóm­sveit söng Helena Eyj­ólfs­dóttir lengst og mest?

9.   Í landi einu eru skráð 90 tungu­mál, auk fjölda málýska. Aleng­asta tungu­málið er oromo, sem er talað af 34 pró­sentum íbúa, eða um 37 millj­ónum manna. Næst algeng­asta tungu­málið er amharíska, sem er talað af rétt tæpum 30 pró­sentum íbúa. Amharíska er mest notað í stjórn­sýslu lands­ins og flestir í land­inu tala það sem annað tungu­mál á eftir sínu eigin. Þess má geta að amharíska er annað útbreiddasta semi­tíska tungu­mál heims á eftir arab­ísku. Meðal ann­arra tungu­mála í land­inu eru tigrinjaska, sidamo, wolaytta og guragíska. Hvaða land er hér átt við?

10.   Hver elskaði Ófelíu? Eða kannski alls ekki?

***

Síðari auka­spurn­ing.

Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þýska­landi.

2.   Úkraínu.

3.   Selma Björns­dóttir.

4.   Bras­il­íu­menn.

5.   Hún var hryðju­verka­maður í Þýska­landi.

6.   Þórður Snær.

7.   Kjóar.

8.   Hljóm­sveit Ingimars Eydals.

9.   Eþíópíu.

10.   Hamlet.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ponte Vecchio sem er að finna í borg­inni Flórens á ítalíu.

Á neðri mynd­inni er Tarot-spil. Nákvæmara þarf svarið ekki að vera, en þetta er „Turninn“.

***

Hér er loks þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár