305. spurningaþraut: Hvað gerðu þeir Viktor, Páll og Óli af sér?

305. spurningaþraut: Hvað gerðu þeir Viktor, Páll og Óli af sér?

Sko, hér er þrautin frá í gær!

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Myndin hér að ofan er tekin 17. júní 1939. Hvað ætli sé þarna að ger­ast? Hér þurf­iði sjálf­sagt að giska en svarið verður eigi að síður að vera nokkuð nákvæmt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Á hvaða reiki­stjörnu sól­kerf­is­ins er mestur hiti? Þá er átt við yfir­borðs­hita.

2.   Al Thani-fjöl­skyldan er auðug og áhrifa­mikil í ríki einu. Einn ætt­ar­lauk­ur­inn bland­að­ist inn í hrun­mál hér á landi á sínum tíma. Frá hvaða landi kemur Al Thani-fólkið?

3.   Hvaða númer ber Cristiano Ronaldo á fót­bolta­treyju sinni?

4.   En Lionel Messi?

5.   Hvaða ár var John F. Kennedy kos­inn for­seti í Banda­ríkj­unum?

6.   Val­gerður Sverr­is­dóttir var um skeið for­maður íslensks stjórn­mála­flokks. Hvaða flokkur var það?

7.   Hver skrif­aði bók­ina Kalda­ljós?

8.   Viktor, Páll og Óli gerðu einu sinni svo­lítið sem þeir hefðu kannski ekki átt að gera. Strangt til tekið var það eflaust brot á ein­hverjum lögum. Þeir nutu þess þó mjög vel sjálfir, leið vel á eftir og þótt kallað væri á lög­regl­una að lokum, þá urðu eft­ir­mál ekki mikil, svo vitað sé. Og allir þeir geysi­mörgu sem horfðu á höfðu mjög gaman af þessu upp­á­tæki þre­menn­ing­anna. Hvað gerðu þeir?

9.   Hvaða efni er H2O?

10.   Í hvaða tveimur löndum búa Baskar flestallir?

***

Síðari auka­spurn­ing.

Hvað heitir dýrið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Venusi.

2.   Katar.

3.   Sjö.

4.   Tíu.

5.   1960.

6.   Fram­sókn­ar­flokks­ins.

7.   Vigdís Gríms­dóttir.

8.   Þeir fengu sér að borða á Grillinu á Hótel Sögu án þess að eiga fyrir matnum. Um er að ræða senu úr kvik­mynd­inni Englar alheims­ins, sem gerð var eftir róm­aðri sögu Einars Más.

9.   Vatn.

10.   Frakk­land og Spáni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er síð­asta opin­bera aftakan með fal­l­öx­inni í Frakk­landi. Hér eru lyk­il­orðin „síð­asta“ og „Frakk­land“. Að aftakan er opin­ber blasir all­mjög við.

Á neðri mynd­inni er maura­æta.

***

Og hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár