304. spurningaþraut: „Heyrðu snöggvast Snati minn ... lof mér nú að leika að ...“

304. spurningaþraut: „Heyrðu snöggvast Snati minn ... lof mér nú að leika að ...“

Þraut númer 303 frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er íþrótta­konan sem prýddi for­síðu jan­ú­ar­heftis Vogue?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða landi er borgin Luzern eða Lucerne?

2.   En hvað heitir höf­uð­borgin í Sýrlandi?

3.   Íslend­ingur einn sat árum saman í fanga­búðum Þjóð­verja í Sachsenhausen í síð­ari heims­styrj­öld. Um hann skrif­aði Garðar Sverr­is­son magn­aða bók sem hét Býr Íslend­ingur hér? Hvað hét mað­ur­inn?

4.   Hvað hét höf­uðguð Rómverja?

5.   Í fyrstu útgáfu af spurn­inga­keppn­inni Gettu betur árið 1986 voru tveir spyrj­endur. Nefnið að minnsta kosti annan þeirra.

6.   Her­odotos nokkur er stundum nefndur „faðir sagn­fræð­innar“. Á hvaða máli skrif­aði hann?

7.   „Heyrðu snöggvast, Snati minn, snjalli vinur kæri, / held­urðu ekki hring­inn þinn ég her­mann­lega bæri? / Lof mér nú að leika að ...“ hverju?

8.   Árið 1917 lauk fyrsta íslenska konan háskóla­prófi frá Háskóla Íslands. Hún hét Kristín Ólafs­dóttir, en í hvaða grein lauk hún prófi?

9.   Alls hafa 39 ein­stak­lingar gegnt starfi rekt­ors Háskóla Íslands frá stofnun 1911. Þar af er aðeins ein kona, sem var rektor 2005-2015. Hvað heitir hún?

10.   Hvað heitir geim­farið sem lenti á dög­unum á Mars? Hér má nefna hvort heldur enskt nafn eða íslenskt.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að neðan heitir Viktoria. En hvað heitir þung­brýndi karl­mað­ur­inn, sem raunar var eig­in­maður hennar?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Sviss.

2.   Damaskus.

3.   Leifur Muller.

4.   Júpíter.

5.   Jón Gúst­afs­son og Þorgeir Ást­valds­son.

6.   Grísku.

7.   „... lát­úns­háls­gjörð þinni.“

8.   Lækn­is­fræði.

9.   Kristín Ing­ólfs­dóttir.

10.   Perseverance eða Þraut­seigja.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Naomi Osaka tennis­drottn­ing er á efri mynd­inni.

Á neðri mynd­inni er Leóníd Brésnev sem átti eftir að verða leið­togi Sov­ét­ríkj­anna.

***

Og þraut númer 303 síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár