303. spurningaþraut: Hver lék föðurinn í Þjóðleikhúsinu?

303. spurningaþraut: Hver lék föðurinn í Þjóðleikhúsinu?

Hérna, já hérna, er hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan sem sést ung að árum á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Faðirinn heitir vin­sæl kvik­mynd, sem lík­lega hefur ekki enn verið sýnd hér en þar leikur Anthony Hopkins gamlan mann, sem far­inn er að þjást af Alzheimer, og reyn­ist það honum mjög erfitt sem von er. Fastlega má búast við að verð­launum rigni yfir Hopkins fyrir hlut­verkið. Myndin er gerð eftir leik­riti sem sýnt var í Þjóð­leik­hús­inu fyrir örfáum árum við mikið lof. Hvaða íslenski leik­ari lék Föðurinn í þeirri sýn­ingu?

2.   Árið 101 eftir Krist gerði Róm­ar­keis­ar­inn Trajanus inn­rás í landið Dakíu og náði með erf­ið­is­munum að leggja landið undir sig. Dakía var síð­asta meiri­háttar við­bótin við Róma­veldi, en Róm­verjar héldu svo land­inu í tæp 200 ár — að þeir hrökkl­uð­ust þaðan burt. Hvaða nútíma­ríki sam­svarar Dakía?

3.   Lesbos heitir grísk eyja í Eyja­haf­inu. Af nafni eyj­ar­innar er dregið orðið „lesbía“ í merk­ing­unni sam­kyn­hneigð kona. Hver eru tengsl Lesbos og lesbía? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

4.   Lengsti skipa­skurður í heimi heitir ein­fald­lega Stóri skurður (á ensku er nafn hans þýtt Grand Canal) og er um 1.800 kíló­metra langur. Hann var graf­inn á löngum tíma og ekki í einu lagi. Í hvaða landi er Stóri skurður?

5.   Henrik heit­inn prins í Danmörku leit það fara mjög í taug­arnar á sér á síð­ari hluta ævinnar að hann skyldi ekki fá að bera kon­ungs­nafn. Í hvaða landi var Henrik fæddur?

6.   „Gata mæðr­anna ger­ist á sjö­unda ára­tugnum og hlut­verk kynj­anna eru skýr. Heima í göt­unni ráða kon­urnar ríkjum, þar er þeirra ver­öld, með börnum og þvottum, glápi og skvaldri – en líka leynd­ar­málum og ósögðum orðum, ást­leysi og ást.“ Þannig var skáldsagan Gata mæðr­anna kynnt af For­lag­inu fyrir síð­ustu jól. Höf­und­ur­inn er þraut­reyndur skáld­sagna­höf­undur og hún heitir ...?

7.   Undir hvaða nafni var Karol Wojtyla þekkt­astur?

8.   Heitkona skálds­ins, hún Jar­þrúður Jóns­dóttir — hvar kemur hún við sögu?

9.   Hvað þýðir orðið kreml?

10.   Hvaða mán­uður að nor­rænu tíma­tali er nýbyrj­aður núna?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þessi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Eggert Þor­leifs­son.

2.   Rúmenía.

3.   Hin sam­kyn­hneigða forn­gríska skáld­kona Saffó var frá Lesbos. Hér verður að nefna Saffó á nafn.

4.   Kína.

5.   Frakk­landi.

6.   Kristín Marja Bald­urs­dóttir.

7.   Jóhannes Páll II.

8.   Í Heims­ljósi (eftir Halldór Laxmess).

9.   Virki.

10.   Góa.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Megan Markle, sem nú kall­ast stundum her­toga­ynja af Sussex.

Megan og eig­in­maður hennar, Harry

Á neðri mynd­inni er Reinhard Heydrich.

***

Og svo hlekk­ur­inn á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár