302. spurningaþraut: Hvað þurfti hetjan Hercules að hreinsa?

302. spurningaþraut: Hvað þurfti hetjan Hercules að hreinsa?

Þrautin síðan í gær!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú jurt er prýðir mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Banda­rísk skáld­kona er kunn fyrir ljóð sín en einnig skáld­sög­una Bell Jar, eða Gler­hjálm. Hún svipti sig lífi aðeins þrí­tug að aldri. Hvað hét hún?

2.   Í Kákasus-fjöllum eru þrjú lítil lönd milli Rúss­lands í norðri og Tyrk­lands og Írans í norðri. Hvað heita þau? Hér verðið þið að hafa tvö rétt til að fá stig fyrir spurn­ing­una.

3.   Í júlí 1881 var vígt hús eitt í Reykja­vík. Smíðin hafði tekið eitt ár, ekki var það nú meira. Hvaða hús var þetta?

4.   Hvað var raun­veru­legt eft­ir­nafn rúss­neska bylt­ing­ar­leið­tog­ans Leníns?

5.   Hvar er borgin Seva­stopol? Hér dugir ekki nafn á ríki, heldur verður svarið að vera nákvæmara en það.

6.   Hver skóp einka­spæj­ar­ann Hercule Poirot?

7.   Gríska forn­hetjan Herkúles þurfti að vinna tólf erf­iðar þrautir í refs­ing­ar­skyni fyrir glæp. Þraut­irnar fólust flestar í að drepa hin og þessi skrímsli en ein þrautin gekk þó út á að hin mikla hetja þurfti að hreinsa svo­lítið. Hvað var það sem Herkúles hreins­aði?

8.   Camp Knox — hvað var það?

9.   En Fort Knox — hvað er geymt þar?

10.   Hver rak­aði af sér allt hárið í febr­úar 2007 þannig að það varð frétt um víða ver­öld?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú glað­lega hljóm­sveit sem hér sést að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Sylvia Plath. Inn­slátt­ar­villa var í nafni skáld­kon­unnar fram eftir morgni, en rétt er nafnið svona.

2.   Georgía, Armenía og Aserbædjan.

3.   Alþing­is­húsið.

4.   Ulyanov.

5.   Á Krím­skaga.

6.   Agatha Christie.

7.   Fjós, flór.

8.   Bragga­hverfi í Reykja­vík. Sjálf­sagt eru ein­hvers staðar til ein­hverjir aðrir Camp Knox en hér er þó aðeins gefið rétt fyrir bragga­hverfið.

9.   Gull.

10.   Britney Spears.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er sjálft þjóð­ar­blómið, holta­sóley.

Á neðri mynd­inni er gleði­hljóm­sveitin The Who.

***

301. þrautin birt­ist í gær, hér er hlekkur á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár