301. spurningaþraut: Hver af lautinöntum Hitlers sýndi iðrun, eða lét að minnsta kosti svo?

301. spurningaþraut: Hver af lautinöntum Hitlers sýndi iðrun, eða lét að minnsta kosti svo?

Hérna sjá­iði 300. spurn­inga­þraut­ina, sem birt­ist í gær.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri að þessu sinni:

Hver er karl­inn hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Árið 1997 stofn­uðu þeir Reed Hastings og Marc Randolph fyr­ir­tæki í Kali­forníu í Banda­ríkj­unum. Fyrstu árin bar ekki mjög mikið á fyr­ir­tæk­inu en það óx og dafn­aði og síð­asta ára­tug­inn er það orðið risa­vaxið og óhætt að segja að allir — eða nán­ast allir — þekkja það að minnsta kosti af afspurn. Hvað heitir fyr­ir­tækið þeirra Hastings og Randolphs?

2.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Norður-Kóreu?

3.   Hver var annar í röð­inni af for­setum Banda­ríkj­anna?

4.   Hver mál­aði fræg­ustu útgáf­una af síð­ustu kvöld­mál­tíð­inni?

5.   Norsk leik­kona lék á sínum mörg af sínum fræg­ustu hlut­verkum í sænskum bíó­myndum og sjón­varps­myndum og sá kunni leik­stjóri Ingmar Bergman leik­stýrði tíu þeirra. Þar á meðal voru Persona, Viskningar och rop, Ansikte mot ansikte og Höst­sonatan. Hvað heitir leik­konan?

6.   Önnur fræg norsk kona heitir Siv Jensen. Hún er umdeildur stjórn­mála­maður, var fjár­mála­ráð­herra Noregs frá 2013 þangað til í fyrra þegar flokkur hennar dró sig úr rík­is­stjórn. Hún er reyndar for­maður í þessum flokki, hvað heitir flokk­ur­inn?

7.   Tinkí Vinkí, Dipsí, Lala og ... hver?

8.   Hver sá um þátt­inn Stiklur í Rík­is­sjón­varp­inu árum saman?

9.   Hvaða fót­boltalið hefur oft­ast orðið Íslands­meist­ari í karla­flokki?

10.   Einn af helstu ráða­mönnum Þriðja ríkis Hitlers var arki­tekt sem var í miklum metum hjá For­ingj­anum. Arki­tekt­inn stýrði síðan her­gagna­fram­leiðslu Þjóð­verja og þótti ná ótrú­legum góðum árangri. Eftir stríðið vakti hann mikla athygli vegna þess að hann var sá eini af for­sprökkum nas­ista sem sýndi ein­hver iðr­un­ar­merki yfir fram­ferði sínu, þótt deilt sé um hve djúpt sú iðrun risti. Hvað hét þessi maður?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Úr hvaða frægu bíó­mynd er þetta skjá­skot hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Netflix.

2.   Pjongj­ang.

3.   Adams.

4.   Leonardo.

5.   Liv Ullmann.

6.   Fram­fara­flokk­ur­inn.

7.   Pó.

8.   Ómar Ragn­ars­son.

9.   KR.

10.   Speer.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni Humphrey Bogart.

Á neðri mynd­inni má sjá skot úr mynd­inni Brokeback Mountain.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár