Britney Spears: Frelsi og fjötrar

Britney Spears skaust upp á himininn sem skærasta poppstjarna þúsald­ar­innar. Lólítu-markaðs­setning ímyndar hennar var hins vegar byggð á brauð­fótum hugmynda­fræðilegs ómöguleika. Heimurinn beið eftir því að hún myndi falla. Hún var svipt sjálfræði aðeins tuttugu og sex ára gömul, en #freebritney hreyfingin berst nú fyrir endurnýjun sjálf­ræðis hennar.

Britney Spears
Britney Spears Skærasta stjarna alda­mót­anna varð frægð­inni að bráð á meðan heim­ur­inn fylgd­ist eft­ir­vænt­ing­ar­fullur með. Mynd: Shutterstock

Britney Spears er á allra vörum þessa dagana í kjölfar nýju heimilda­myndarinnar Framing Britney Spears, sem framleidd er af New York Times. Myndin rekur ris og fall Britney í linsu fjölmiðla og augum heims­byggðar fram að stærsta vendi­punktinum í lífi hennar, þegar hún var svipt sjálfræði aðeins 26 ára að aldri. Faðir hennar, sem vann á þeim tíma við veislu­þjónustu, tók við völdunum yfir lífi hennar og fjárræði yfir stór­veldinu sem hún hafði byggt.

Markaðsvöruvæðing Lólítunnar

Fyrsta plata Britney Spears, ...Baby One More Time, kom út árið 1999 og toppaði fljótlega vinsælda­lista um allan heim. Platan samanstóð að mestu af angur­værum og örvæntingar­fullum dægur­lögum um ást, sambands­slit og eftirsjá. Leið hinnar sautján ára Britney upp á stjörnu­himininn var greið og skjót, en líf táningsins tók dras­tískum breytingum í kjölfarið. Britney var orðin opinber persóna, hagsmuna­eining fjölmiðla, stór­fyrirtækja og eigin foreldra.

Titillag plötunnar, ...Baby One More Time, og mynd­bandið sem fylgdi því stimplaði hana inn sem kynþokka­fulla skóla­stúlku. Hún var Lolita og heimurinn var Humbert Humbert. David LaChapelle myndaði Britney í barna­herberginu hennar fyrir Rolling Stone, fáklædda og umkringda barna­leikföngum. Það var skýrt frá fyrsta degi hvers konar menningar­tákn hin sextán ára Britney átti að vera. 

Baby One More TimeBritney var sautján ára gömul þegar platan ... Baby One More Time var gefin út árið 1999 en fer­ill hennar hófst þegar hún var 11 ára gömul.

Myndir LaChapelle stimpluðu Britney inn í menningar­söguna sem ákveðinn hugmynda­fræðilegan ómöguleika. Rétt eins og í Lolitu eftir Nabokov var henni teflt fram sem báðum pólum af tvíhyggju kven­leikans; hún var barnung, hrein og tær, en í senn kynferðisleg og kynþokka­full vera. Skila­boðin voru skýr. Menningarleg þráhyggja fyrir hinni barnungu Britney Spears var hafin. Hún var skærasta stjarna alda­mótanna. Karlmenn þurftu ekki að skammast sín fyrir að girnast hana. Konur áttu að vera hún. Þetta er þröngur vegur að feta fyrir allra augum. Almennings­álitið er viðkvæmt og brigðult, frægðin tvíeggja sverð. Ímynd Britney sem stór­stjörnu sáði fræjum eyði­leggingar hennar. Heimurinn var hugfanginn, en beið í senn eftir því að hún myndi misstíga sig. 

Ímyndin innibar eyðilegginguna 

Stefna ofur­kynferðislegrar vöru­væðingar Britney Spears hélt áfram í næstu plötu hennar, Oops!... I did it again, sem kom út árið 2000. Titil­lagið er eins og óður til menningarinnar og samfélagsins sem hafði kyngert hana frá bernsku. Hún gengur inn í hlutverk kynþokka­fullrar geimveru sem tælir menn að gamni sínu. „Oops, you think I'm in love. That I'm sent from above. I'm not that innocent.“ Hún axlar ábyrgð á eigin kyngervingu og fríar okkur henni um leið.

Markaðs­væðing  Britney Spears krafðist þess að báðum pólum menningarlegrar tvíhyggju­andstæðu kven­leikans væri pakkað saman í einni unglings­stúlku. Britney var hlutgerð og markaðsvöru­vædd sem kynferðisleg vera en í senn kröfðust menningarlegar afstæður þess að hún væri óspjölluð meyja, hin fullkomna fyrirmynd fyrir allar stúlkur í hinum vestræna heimi. Það er ef til vill vegna þessa hugmynda­fræðilega ómöguleika að heimurinn beið eftir því að Britney myndi falla. Þversögnin gat ekki lifað í samlyndi við sjálfa sig til lengri tíma. 

„Ekki svo sak­laus“Britney var nítján ára þegar Oops I Did it Again kom út.

Almenningsálitið snýst gegn Britney

Ofur­fjölmiðluð sambands­slit Britney og Justin Timberlake voru upphafið af hruni orðspors hennar. Tónlistar­myndband Timberlake stjórnaði narratív­unni sem var borin ofan í almenning. Það málaði hana sem svikulan kven­djöful sem traðkaði á hjartaknús­aranum. Í fjöl­miðlum fullyrti hann að hún væri ekki óspjölluð meyja. Hann var ekki aðeins búinn með hana, heldur hafði hún haldið framhjá honum. Forsendur ímyndar hennar voru brostnar. Britney var orðin drusla.

Fjöl­miðlar urðu sífellt óvægnari í garð Britney og hún byrjaði að brotna undan álaginu. Slúður­blöð lögðu fúlgur fjár undir til að fá ljós­myndir sem sýndu hana í slæmu ljósi. Eftir röð fjöl­miðlaðra áfalla var Britney svipt forræði yfir börnunum sínum. Hún var nauðungar­vistuð á geðdeild og missti að lokum sjálfræði. Hún er 39 ára gömul og ósjálfráða, en Free Britney-hreyfingin berst fyrir frelsi hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár