300. spurningaþraut: Þríeyki, þrenningar og tríó

Hér er þraut 299!

***

Í til­efni af því að þetta er 300. spurn­inga­þrautin snú­ast allar spurn­ing­arnar um þrí­eyki af ýmsu tagi. Og fyrri auka­spurn­ing er þessi:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá hvaða tríó?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Ripp, Rapp og Rupp heita syst­ur­synir Andrésar Andar á dönsku. En hvað heita þeir á ensku?

2.   Kasper, Jesper og Jónatan; hvar kemur þetta þrí­eyki við sögu?

3.   „Hvenær munum við þrjár hitt­ast næst?“ Hverjar spyrja svo?

4.   Athos, Portos og Aramis — hvaða þrí­eyki er þetta?

5.   Hermione, Ron og Harry. Hver eru eft­ir­nöfn þess­ara þre­menn­inga? Hafa verður þau öll þrjú rétt.

6.   Skarp­héð­inn Njálsson var ein­lægt á ferð með tveimur bræðra sinna. Hvað hétu þeir?

7.   Árið 60 fyrir Krist stofn­uðu þrír met­orða­gjarnir valda­menn í Róm svo­nefnt „þrí­stjóra­veldið fyrra“ og lof­uðu þre­menn­ing­arnir að hjálp­ast að við að ota hver sínum tota. Tveir þess­ara þre­menn­inga voru Caesar og Pompeius en hvað hét sá þriðji? Sá var ekki síst kunnur fyrir að vera for­ríkur.

8.    Geysi­vin­sælt tríó starf­aði kringum alda­mótin 2000. Um nokkrar manna­breyt­ingar var að ræða í tríó­inu en vin­sæl­ast var tríóið þegar þessar þrjár störf­uðu þar saman: Beyoncé Knowles, Kelly Rowland og Michelle Williams. Hvað hét tríóið?

9.   Melkíor, Kaspar og Baltasar eru nöfn sem stundum eru notuð um þrjá menn sem eng­inn veit í raun og veru hvað hétu. Hverjir voru þeir?

10.   Þegar Leik­fé­lag Reykja­víkur setti upp leik­ritið Þið munið hann Jörund kringum 1970 tróð þar upp tríó eitt á palli við hlið leik­sviðs­ins, sem síðan starf­aði með hléum í ára­tug eða svo. Hvað hét þetta tríó?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Allir vita að Clint Eastwood lék þann „góða“ (il buono) í þess­ari frægu mynd Sergio Leone. En hverjir léku þann „vonda“ (il cattivo) og þann „ljóta“ (il brutto)? Nefnið að minnsta kosti annan leik­ar­ann.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Huey, Louie og Dewey.

2.   Í Kar­dimommu­bænum.

3.   Norn­irnar þrjár í Makbeð eftir Shakespe­are.

4.   Skytt­urnar þrjár í sam­nefndri sögu Dumas.

5.   Hermione Granger, Ron Weasley og Harry Potter.

6.   Helgi og Grímur.

7.   Crassus.

8.   Destiny's Child.

9.   Vitr­ing­arnir þrír.

10.   Þrjú á palli.

Þrjú á pallier þau komu saman í sjón­varps­sal 2003.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Tríóið á efri mynd­inni nefnd­ist The Supremes

Þeir sem léku með Clint í The Good, The Bad and the Ugly voru Eli Wallach og Lee van Cleef.

Loka­senan í mynd Leone.Njótið hennar!

***

Hér er svo þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár