287. spurningaþraut: Hvar var Hery Martial Rajaonarimampianina Rakotoarimanana forseti?

287. spurningaþraut: Hvar var Hery Martial Rajaonarimampianina Rakotoarimanana forseti?

Þraut gær­dags­ins.

***

Auka­spurn­ing 1:

Unga konan á mynd­inni hér að ofan er til­nefnd til verð­launa fyrir leik sinn í ... hverju?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Konráð og Erlendur. Hvaða menn eru það? 

2.   Emil Nielsen var maður danskur en var fyrsti fram­kvæmda­stjóri íslensks fyr­ir­tækis, sem var sann­kall­aður burða­rás sam­fé­lags­ins á sínum tíma, og jafn­vel að ein­hverju leyti enn. Hvaða félag var það?

3.   27. apríl 2014 rann maður til á hálu grasi suður á Englandi. Hver er mað­ur­inn?

4.   Hver skrif­aði Heimskringlu?

5.   Hver gekk gjarnan undir nafn­inu Blái eng­ill­inn?

6.   Hvar er Dog­ger­banki?

7.   Hvaða Íslend­ingur erfði flug­völl í útlöndum?

8.   Evr­ópu­sam­bands­löndin eru nú 27 eftir að Bretland gekk á dyr. Hve mörg þeirra hafa konu í valda­mesta póli­tíska emb­ætti rík­is­ins?

9.   Hvað hét hinn ein­eygði höf­uðguð nor­rænna manna?

10.   Hery Martial Raja­ona­rimamp­i­an­ina Rakotoa­rim­an­ana var for­seti í býsna stóru landi í Afríku frá 2014 ti 2018. Hann bauð sig svo fram að nýju, en komst ekki í síð­ari umferð for­seta­kosn­ing­anna í land­inu, þar sem á end­anum var kosið milli Marc Raval­om­an­ana og Andry Nirina Rajoel­ina. Þeir höfðu reyndar báðir gegnt for­seta­emb­ætt­inu áður. Andry Nirina Rajoel­ina bar sigur úr býtum og er nú for­seti lands­ins. Hvaða land er þetta?

***

Auka­spurn­ing 2:

Hvað heitir karl­inn sem heldur hér á dag­blaði?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Lög­reglu­menn, aðal­per­sónur í glæpa­sögum Arnaldar Ind­riða­sonar. Auðvitað er eflaust víða hægt að finna bæði Konráð og Erlend, en þetta er samt eina rétta svarið. 

2.   Eim­skipa­fé­lag Íslands. 

3.   Steven Gerrard.

4.   Snorri Sturlu­son.

5.   Marlene Dietrich.

6.   Í Norð­ur­sjó.

7.   Guð­bergur Bergsson.

8.   Fimm — Danmörk, Eistland, Finnland, Litháen og Þýska­land. Litháen er talið hér með þótt for­seti þar í landi sé all­valda­mik­ill og þar sitji karl­maður. Í Slóvakíu er kona for­seti en það emb­ætti er valda­lítið, líkt og for­seta­emb­ættið á Íslandi. 

9.   Óðinn.

10.   Madaga­skar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hún Anya Taylor-Joy er til­nefnd til verð­launa fyrir leik sinn í sjón­varps­s­er­í­unni Drottn­ing­ar­bragði — The Queen's Gambit.

Og það var að sjálf­sögðu Truman Banda­ríkja­for­seti sem heldur sigri hrós­andi á blað­inu, þar sem til­kynnt var (rang­lega) að hann hefði beðið lægri hlut í for­seta­kosn­ingum vest­an­hafs gegn Thomasi Dewey. 

***

Og að lokum:

Þraut gær­dags­ins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár