286. spurningaþraut: Tvær bækur með tveggja ára millibili um ofbeldi í Austurlandahraðlestinni!

286. spurningaþraut: Tvær bækur með tveggja ára millibili um ofbeldi í Austurlandahraðlestinni!

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Þetta var nú aldeilis frægt fólk hér á árum áður. Hvaða fólk er þetta sem þarna hefur lokið við hádeg­is­verð í New York rétt upp úr 1970? Og já, þið þurfið að nefna þau bæði.

***

1.   Allir vita að him­inn­inn er blár en þegar sólin er að setj­ast á vest­ur­himn­inum, þá verður svæðið í kringum sól­ina gjarnan bleikt eða rautt. En á einum fjar­lægum stað er þetta raunar þver­öf­ugt. Him­inn­inn er þar yfir­leitt rauð­leitur en verður blár kringum sól­ina er hún sest. Hvaða staður er þetta?

2.   Í banda­rísku full­trúa­deild­inni situr fjöldi þing­manna. Nokkrir full­trúar sitja þar án atkvæð­is­réttar — full­trúar ann­arra svæða en hinna hefð­bundnu ríkja — en hve margir eru hinir full­gildu full­trúar þegar hvert sæti er skipað? Hér er gefið svig­rúm upp á 15 þing­menn til eða frá.

3.   Með hvaða tríói söng Helgi Pét­urs­son lengi?

4.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Morðið í Aust­ur­landa­hrað­lest­inni árið 1934?

5.    Tveimur árum áður kom út önnur bók um morð og ódæði í Aust­ur­landa­hrað­lest­inni sem enskur höf­undur skrif­aði. Stamboul Train hét sú bók. Höf­und­ur­inn þótti með skárri höf­undum á Englandi á 20. öld, þótt nú séu bækur þessa höf­undar lík­lega ekki mikið lesnar. Það eru verk eins og Okkar maður í Havana, Hægláti Amer­íku­mað­ur­inn, Brighton Rock. Hvað hét þessi höf­undur?

6.   Hvað heitir það ferli sem plöntur nota til að vinna sér fæðu úr sól­ar­birtu?

7.   Nicomar-eyjar heitir lít­ill og afskekktur eyja­klasi í Ind­lands­hafi, beint í suður af Andaman-eyjum. Þar hefur fólk búið frá örófi en um 1750 komu útsend­arar frá Evr­ópu­ríki einu og gerðu Nicomar-eyjar að úti­búi lít­illar nýlendu sem þetta Evr­ópu­ríki átti á aust­ur­strönd Indlands og hét þá Trankebar. Meðan þetta ónefnda ríki réði eyj­unum köll­uð­ust þær Frið­riks­eyjar. Um miðjan nítj­ándu öld voru engir íbúar eftir, enda hafði malaría geisað stjórn­laust á eyj­unum. Bretland tók þá við eyj­unum af fyrr­nefndu Evr­ópu­ríki sem var fegið að losna við þær. Hvaða ríki réði þessum eyjum í rúm 100 ár?

8.   Tveir íslenskir karlar hafa verið á mála hjá enska fót­boltalið­inu Liverpool — full­orð­ins­lið­inu — þótt hvor­ugur hafi náð svo langt að leika fyrir aðal­lið félags­ins. Nefnið annan þeirra.

9.   Hvað hét ferjan sem fór milli Reykja­víkur og Akraness?

10.   Í hvaða borg er sívali turn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er myndin hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Á reiki­stjörn­unni Mars.

2.   Þing­menn­irnir eru 435 svo rétt er allt frá 420 til 450.

3.   Ríó tríó­inu.

4.   Agatha Christie.

5.   Graham Greene.

6.   Ljóstil­lífun.

7.   Danmörk.

8.   Haukur Ingi Guðnason og Guð­laugur Victor Pálsson.

9.   Akraborg.

10.   Kaup­manna­höfn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru Andy Warhol lista­maður og Bianca Jagger bar­áttu­kona og frægð­ar­frú.

Neðri mynd­inni eru mynd­inni Frozen.

***

Og loks hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár