284. spurningaþraut: Rauðatorgið, Rósagarðurinn, Grimaldi, George Eliot

Hlekk­ur­inn á gær­dags­þraut­ina, hér er hann.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er stúlkan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar.

1.   Hvað hét fyrsti for­seti lýð­veld­is­ins Íslands?

2.   Þessi fyrsti for­seti Íslands var maður virtur vel. Það þótti þó nokkuð vand­ræða­legt innan fjöl­skyld­unnar að elsti sonur hans var um tíma með­limur í sam­tökum, sem hafa ekki beint gott orð á sér. Hvaða sam­tök voru það?

3.   Hvar er Grimaldi-fjöl­skyldan í sér­stökum hávegum höfð?

4.   Hvaða teikni­mynda­sögu sköp­uðu þeir René Goscinny og Alberto Uderzo?

5.   Hvað áttu enski rit­höf­und­ur­inn George Eliot (1819-1880) og franski rit­höf­und­ur­inn George Sand (1804-1876) sam­eig­in­legt, fyrir utan nafnið George?

6.  Hvar eru sam­liggj­andi svæði sem kall­ast Rauða­torgið og Rósa­garð­ur­inn?

7.   Hvað hét franski kóng­ur­inn sem afhaus­aður var 21. jan­úar 1793? Hér verður svarið að vera nákvæmt, altso með réttu kon­ungs­núm­eri.

8.   En hvað hét drottn­ing hans, sem afhausuð var hálfu ári síðar?

9.   Ceylon var eyja ein eitt sinn kölluð. Hvað heitir hún núna?

10.   Shania Twain heitir kanadísk country-söng­kona, hálfsex­tug núna. Árið 1997 gaf hún út plöt­una Come On Over, sem á nokkur met en þar af eru tvö merki­leg­ust. Nefnið að minnsta kosti annað þeirra.

***

Síðari auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að neðan hét Agnes Gonxha Bojaxhiu. Hún var reyndar miklu, miklu kunn­ari undir öðru nafni. Hvað var það?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Sveinn Björns­son.

2.   SS-sveit­unum.

3.   Monaco. 

4.   Asterix eða Ástríkur.

5.   Þær voru konur.

6.   Milli Íslands og Færeyja. „Úti í sjónum“ er ekki nógu nákvæmt.

7.   Loðvík sext­ándi.

8.   María Ant­o­netta.

9.   Sri Lanka.

10.   

Love Gets Me Every Time— eitt af tólf (!) af hinum sextán lögum plöt­unnar Come On Over sem gefið var út á smá­skífu.

Platan er mest selda hljóm­plata konu í sög­unni og enn­fremur mest selda country-plata allra tíma. Ef ein­hverjum dettur í hug að nefna að Come On Over sé mest selda plata kanadísks lista­manns mun ég einnig gefa rétt fyrir það.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á eftir mynd­inni er Anne Frank.

Konan á neðri mynd­inni varð hins vegar kunn undir nafn­inu Móðir Teresa.

***

Hlekk­ur­inn á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár