Sjö tilkynningar um aukaverkanir af völdum bólusetningar - Eitt tilfelli mögulega alvarlegt

Sjö til­kynn­ingar hafa borist Lyfja­stofnun um auka­verk­anir af völdum bólu­setn­ingar gegn Covid-19 hér á landi og þar af er ein um mögu­legar alvar­legar afleið­ingar. Ekkert er þó ljóst um orsakir þess og mögu­legt sam­band við aðra þætti eins og und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Sjö til­kynn­ingar um auka­verk­anir vegna bólu­setn­inga við Covid-19 hafa borist til Lyfja­stofn­unar. Þar af er ein til­kynn­ing um hugs­an­lega alvar­legar auka­verk­anir en orsaka­sam­band er óljóst í því efni. Þetta kom fram í máli Ölmu Möller land­læknis á upp­lýs­inga­fundi land­lækn­is­emb­ætt­is­ins og almanna­varna í dag. Að öðru leyti hafa auka­verk­anir af völdum bólu­setn­ing­ar­innar ekki verið telj­andi heldur í takt við það sem almennt ger­ist við bólu­setn­ingu. 

Næsti skammtur af bólu­efni frá Pfizer mun ber­ast hingað til lands 21. jan­úar og viku­lega eftir það út mars mánuð en sam­kvæmt afhend­ing­ar­á­ætlun mun þá hafa borist nægi­legt bólu­efni frá fyr­ir­tæk­inu til að bólu­setja 25 þús­und manns. Búið er að tryggja bólu­efni fyrir 125 þús­und manns frá fyr­ir­tæk­inu en óljóst er hvenær skammtar fyrir 100 þús­und manns sem eftir standa eftir mars­mánuð munu ber­ast. Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir sagði á fund­inum að sér­stakar við­ræður við Pfizer um bólu­efni til að bólu­setja þjóð­ina alla og fylgj­ast með því verk­efni sem til­raun séu staddar á þeim stað að bolt­inn sé hjá Pfizer. Hann sagð­ist gera sér hóf­legar vænt­ingar um að svör frá fyr­ir­tæk­inu við þeirri hug­mynd myndu ber­ast á næstu dögum. 

Þórólfur sagði einnig að gleði­legt væri að búið væri að tryggja bólu­efni fyrir alla þjóð­ina. Ísland hefði tryggt sér bólu­efni fyrir um 60 þús­und manns frá Moderna en búst ef við að bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins fái mark­aðs­leyfi í Evrópu í dag. Þá er einnig von til þess, sagði Þórólfur, að stytt­ist í að bólu­efni frá AztraZenica fái mark­aðs­leyfi í Evrópu. Ísland hefur tryggr sér bólu­efni frá fyr­ir­tæk­inu fyrir 115 þús­und manns. 

Ný reglu­gerð um sótt­varnir mun taka gildi 12. jan­úar næst­kom­andi og sagði Þórólfur á fund­inum í dag að ef ástandið á far­aldr­inum héld­ist svipað og verið hefur mætti búast við til­slök­unum á sam­komu­tak­mörk­unum þá. Vel virt­ist hafa tek­ist upp í bar­átt­unni gegn Covid yfir hátíð­arnar en þessi vika myndi þó skera úr um það. Ekki má þó slaka á í per­sónu­bundnum sótt­vörnum enda mik­il­vægt að halda far­aldr­inum áfram í skefjum. 

   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár