Héraðssaksóknari: Samherjamálið í Namibíu opnaði augu Íslendinga

Ísland er gagn­rýnt harð­lega fyrir lin­kind í eft­ir­liti með mútu­málum Íslend­inga erlendis í skýrslu OECD. OECD segir að Sam­herj­a­málið hai breytt við­horfi Íslend­inga til efn­is­ins og í reynd svipt þá sak­leys­inu að þessu leyti. Ólafur Hauksson segir mik­il­vægt að Ísland gyrði sig í brók þegar kemur að eft­ir­liti með mögu­legum mútu­brotum.

Héraðssaksóknari: Samherjamálið í Namibíu opnaði augu Íslendinga
Svipt sak­leys­inu í mútu­málum OECD segir að Ísland hafi verið svipt sak­leys­inu í við­horfum til mútu­mála íslenskra aðila í öðrum löndum út af Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu. Þor­steinn Már Bald­vins­son sést hér með nokkrum þeirra sem sitja í gæslu­varð­haldi fyrir að hafa þegið mútur af fyr­ir­tæk­inu.

„Þessi skýrsla ásamt Namib­íu­mál­inu gerir það að verkum að við getum ekki  lengur ornað okkur lengur við þá hugsun að ómögu­legt sé að íslensk fyr­ir­tæki kunni að vera þátt­tak­endur í svona hátt­semi erlendis,“ segir Ólafur Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari í Reykja­vík, sem stýrir því emb­ætti sem fer með rann­sókn mögu­legra mútu­mála íslenskra fyr­ir­tækja og Íslend­inga erlendis, aðspurður um nýja skýrslu starfs­hóps Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) um við­búnað og rann­sóknir íslenskra yfir­valda á mútu­málum. Skýrslan ber heitið Implem­ent­ing the OECD Anti-bribery convention. 

Í skýrsl­unni er bent á fjöl­mörg atriði sem íslensk yfir­völd geta bætt í eft­ir­liti og rann­sóknum á ætl­uðum mútu­brotum. 

Ólafur: Ekki prívatmál 

Ólafur segir að Íslend­ingar þurfi að vera betur á verði í þessum mála­flokki: „Við verðum bara að axla þær skyldur sem á okkur hvíla og standa okkur í því að vinna gagn­gert að því að rann­saka þær grun­semdir sem upp koma um svona hátt­semi og fylgja því vel …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár