Ekki búið að tryggja nægt bóluefni fyrir alla þjóðina

Það bólu­efni sem tryggt hefur verið frá fyr­ir­tækj­unum Pfizer og Moderna dugar aðeins til að bólu­setja hluta þjóð­ar­innar. Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir greindi frá þessu á upp­lýs­inga­fundi land­lækn­is­emb­ætt­is­ins og almanna­varna í dag. Treysta verði á að tryggja megi fleiri skammta eða að bólu­efni AstraZenica verði aðgengi­legt.

Sá fjöldi skammta af bólu­efni við Covid-19 frá Pfizer og Moderna lyfja­fyr­ir­tækj­unum, sem lengst eru komin í ferl­inu, sem Ísland hefur tryggt sér mun ekki duga til að bólu­setja nema hluta þjóð­ar­innar. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag.

Þórólfur greindi frá því að Ísland myndi fá 180.000 skammta af bólu­efn­inu, sem mögu­legt væri að kæmi allt í einni send­ingu þegar af yrði. Það dygði hins vegar ekki til og því yrði að von­ast til að samn­inga­við­ræður ESB við fyr­ir­tækin um fleiri skammta myndu skila árangri. Annars verði að von­ast til að bólu­efni frá AstaZeneca myndu koma á markað, en þar er um að ræða veru­lega mikið meira magn sem Ísland fengi, eða að önnur bólu­efni myndu fá markað­leyfi sem við gætum þá fengið. 

Þórólfur dró þá tals­vert úr bjart­sýn­is­röddum þess efnis að bólu­setn­ing geti haf­ist hér á landi fljót­lega eftir ára­mót. Fólk þyrfti að hafa raun­hæfar vænt­ingar í þeim efnum. Lyfja­stofnun Evrópu ætti enn eftir að klára mat sitt á bólu­efni Pfizer fyr­ir­tæk­is­ins og óljóst hvenær það myndi ger­ast. Þá megi ekki horfa fram hjá því að mán­uður líði þar til bólefni fari að skila virkni. Því sé afar mik­il­vægt að fólk gæti enn og nú að per­sónu­bundnum sótt­vörnum sínum, og fram til þess tíma að bólu­setn­ing hafi skilað hjarð­ó­næmi hjá þjóð­inni. 

Lesa má helstu atriði sem komu fram á upp­lýs­inga­fund­inum hér að neðan eða horfa á hann í spil­ar­anum efst í frétt­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár