Ekki búið að tryggja nægt bóluefni fyrir alla þjóðina

Það bóluefni sem tryggt hefur verið frá fyrir­tækjunum Pfizer og Moderna dugar aðeins til að bólusetja hluta þjóðarinnar. Þórólfur Guðnason sóttvarnar­læknir greindi frá þessu á upplýsinga­fundi land­læknis­embættisins og almanna­varna í dag. Treysta verði á að tryggja megi fleiri skammta eða að bóluefni AstraZenica verði aðgengilegt.

Sá fjöldi skammta af bóluefni við Covid-19 frá Pfizer og Moderna lyfja­fyrir­tækjunum, sem lengst eru komin í ferlinu, sem Ísland hefur tryggt sér mun ekki duga til að bólusetja nema hluta þjóðarinnar. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sóttvarnar­læknis á upplýsinga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag.

Þórólfur greindi frá því að Ísland myndi fá 180.000 skammta af bólu­efninu, sem mögulegt væri að kæmi allt í einni sendingu þegar af yrði. Það dygði hins vegar ekki til og því yrði að vonast til að samninga­viðræður ESB við fyrir­tækin um fleiri skammta myndu skila árangri. Annars verði að vonast til að bóluefni frá AstaZeneca myndu koma á markað, en þar er um að ræða verulega mikið meira magn sem Ísland fengi, eða að önnur bóluefni myndu fá markað­leyfi sem við gætum þá fengið. 

Þórólfur dró þá talsvert úr bjartsýnis­röddum þess efnis að bólu­setning geti hafist hér á landi fljótlega eftir áramót. Fólk þyrfti að hafa raunhæfar væntingar í þeim efnum. Lyfja­stofnun Evrópu ætti enn eftir að klára mat sitt á bóluefni Pfizer fyrir­tækisins og óljóst hvenær það myndi gerast. Þá megi ekki horfa fram hjá því að mánuður líði þar til bólefni fari að skila virkni. Því sé afar mikilvægt að fólk gæti enn og nú að persónu­bundnum sótt­vörnum sínum, og fram til þess tíma að bólu­setning hafi skilað hjarð­ónæmi hjá þjóðinni. 

Lesa má helstu atriði sem komu fram á upplýsinga­fundinum hér að neðan eða horfa á hann í spil­aranum efst í fréttinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sóttkví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gefinn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnar­læknir. Mun meira er um að alvarlega veikir einstak­lingar komi beint inn á spítalann í innlögn en verið hefur en hafi ekki viðkomu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúklingum sem lagst hafa inn á gjörgæslu­deild í þessari bylgju faraldursins.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár