Verða sér úti um falskt læknisvottorð til að komast hjá grímuskyldu

Meðlimir Facebook-síð­unnar Coviðspyrnan ráð­leggja hvort öðru um það hvernig sé best að bera sig að við að verða sér út um falskt lækn­is­vott­orð til að þurfa ekki að nota grímur í versl­unum.

Verða sér úti um falskt læknisvottorð til að komast hjá grímuskyldu
Grímu­skylda Komið hefur í ljós að ein­stak­lingar ljúgi sér upp veik­indi til þess að þurfa ekki að ganga með grímu. Þetta gera þeir vegna þess að þeir eru á móti aðgerðum stjórn­valda gegn Covid-19 Mynd: AFP

Meðlimur í hópnum Coviðspyrnan, hóp sem stofn­aður var til að „skipu­leggja við­spyrnu gegn öfga­fullum og skað­legum aðgerðum yfir­valda gegn Covid“, dreifir ráð­legg­ingum um hvernig hægt sé að kom­ast undan grímu­skyldu. 

„Ég hitti engan lækni, hringdi bara í heilsu­gæslu og bað um að tala við lækni út af vott­orði. Sótti það sam­dæg­urs. Svo já, allir geta fengið þetta. Og þetta virkar. Búinn að fara á marga staði og prófa,“ skrif­aði mað­ur­inn í ummælum undir færslu sem hann setti inn í hóp­inn. Upp­hafsinn­leggið var mynd af lækn­is­vott­orði sem und­an­skilur hann grímu­skyldu.

Fleiri vilja fá vottorð 

Þegar ummæli við færsl­una eru skoðuð má sjá að mað­ur­inn lætur með­limi hóps­ins vita hvar hann hefur prófað að ganga inn grímu­laus með vott­orð. Nokkrir með­limir segj­ast ætla að útvega sér slíkt vott­orð sjálfir.

„Á dag­skrá mánu­dags­ins að fá vott­orð fyrir alla fjöl­skyld­una,“ skrif­aði einn þeirra.

„Ég ætla að hringja í mína heilsu­gæslu og fá mér svona,“ skrif­aði annar.

Einn með­lim­ana stakk upp á að með­limir hóps­ins myndu ganga saman inn í verslun grímu­laus til að „sýna hinum hvernig lífið var „fyrir“ Covid“. 

Mælti með aðferðum til að fá vottorð

Þá voru gefnar ráð­legg­ingar um það hvað sé best að segja við lækni, vilji maður verða sér út um vott­orð. „Veit að í Þýska­landi hefur virkað vel að tala um að maður hafi lent í því að reynt hafi verið að kæfa mann og gríman fái mann til að end­ur­upp­lifa það,“ benti einn með­lim­ur­inn á.

Maðurinn sem um ræðir sagði hins vegar við sinn lækni að gríman ylli honum kvíða­köstum, inni­lok­un­ar­kennd og önd­un­ar­erf­ið­leikum.

Einn með­limur sagð­ist ætla að verða sér út um vott­orð og von­að­ist til þess að hann myndi hitta á „góðan lækni.“ Maðurinn benti honum þá á að „útlenskir eru skiln­ings­rík­ari af þeim sem ég hef heyrt um vott­orðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár