Bókamessa í Bókmenntaborg hefur verið fastur liður síðustu ár og óformlegt upphaf jólabókaflóðsins. Til stóð að halda bókamessuna í Hörpu dagana 21. og 22. nóvember en vegna samkomubanns hefur verið ákveðið að færa bókamessuna yfir á netið.
Á hverjum miðviku- og sunnudegi fram til 13. desember kl. 14 verður bókmenntaspjall við höfunda, útgefendur, bóksala og fleiri á Facebook-síðu Bókmenntaborgarinnar.
Athugasemdir