Samsærið í málsvörnum eiginkvenna Jóns Baldvins og Jean-Claude Arnault

Bryndís Schram og sænska skáld­konan Katarina Frosten­son eru giftar mönnum sem urðu að and­litum Metoo-umræð­unnar í heima­löndum sínum, Íslandi og Svíþjóð. Í til­fellum Jóns Baldvins Hanni­bals­sonsar og Jean Claude Arnault stigu margar konur fram og ásök­uðu þá um kyn­ferð­is­lega áreitni. Mál þeirra beggja hafa að hluta til farið sinn veg í dóms­kerf­inu á Íslandi og í Svíþjóð. Báðar hafa eig­in­konur þeirra skrifað bækur til að verja eig­in­menn sína þar sem þær reyna að sýna fram á að menn þeirra hafi verið beittir órétti og séu fórn­ar­lömb úthugs­aðra sam­særa sem fjöl­miðlar eru hluti af.

Samsærið í málsvörnum eiginkvenna Jóns Baldvins og Jean-Claude Arnault
Stórt sam­særi Sam­sær­is­kenn­ingin sem teiknuð er upp í bók Bryn­dísar um það sem hún kallar „atlög­una“ að sér og Jóni Baldvini Hanni­bals­syni er stór. Dóttir þeirra Aldís, fjöl­miðlar og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tóku höndum saman til að koma á höggi á Jón Baldvín. Mynd: Gunnar V. Andrésson

„„Dag­blaðið“ Dagens Nyheter hefur soðið saman sögu sem verður gefin út þann 21. nóv­em­ber. Leitað hefur verið að mann­eskjum sem setja fram það sem kall­ast „vitn­is­burðir“. […] Hér fá þær að stíga fram nafn­laust með ógeð­felldar ýkjur, lygar og róg­burð. Hvaða saga er þetta, hvaða drama er þetta? Þetta er sam­særi. Þetta er plott,“ segir sænska skáld­konan Katarina Frosten­son, eig­in­kona þekktasta við­fangs Sví­þjóðar í Metoo-umræð­unni, Jean Claude-Arnault, í varn­ar­bók sinni um hann, K, sem kom út í fyrra. Frosten­son kallar kon­urnar sem stigu fram og sögðu frá hátt­erni eig­in­manns hennar „hinar öfund­sjúku“.

Átján konur stigu fram árið 2017, sumar undir nafni og aðrar nafn­laust, og vændu Arnault um mis­al­var­lega kyn­ferð­is­lega áreitni og kyn­ferð­is­of­beldi, allt frá læra­snert­ingum og kyn­færa- og rassa­káfi til nauð­gana, í dag­blað­inu Dagens Nyheter. Sú umfjöllun leiddi til lög­reglu­rann­sóknar á Arnault og loks fang­els­is­dóms fyrir tvær nauðg­anir haustið 2018. 

Varn­ar­rit með …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár