Gríðarstór jarðskjálfti reið yfir landið

Skjálft­inn var um 5,6 að stærð og fannst vítt og breitt um landið, allt frá Vest­manna­eyjum í suðri og vestur á Flateyri. Skjálft­inn teng­ist ekki eld­virkni heldur er af völdum fleka­hreyf­inga á Reykja­nesi.

Í beinni útsendingu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í beinu viðtali við Washington Post á þegar skjálftinn reið yfir.

Gríð­ar­stór jarð­skjálfti reið yfir landið klukkan 13:43 í dag. Fannst skjálft­inn vítt og breitt um landið, en til­kynnt hefur verið um að fólk hafi fundið fyrir skjálft­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í Vest­manna­eyjum, á Vest­ur­landi, Vest­fjörðum og Norð­ur­landi. Samkvæmt Almanna­vörnum var skjálft­inn 5,6 að stærð og átti upp­tök sín í Núpa­hlíð­ar­hálsi, um 7 kíló­metra vestur af Kleif­ar­vatni.

Ljóst er að skjálft­inn teng­ist ekki eld­virkni heldur er til­kom­inn vegna fleka­hreyf­inga. Yfir 50 eft­ir­skjálftar hafa fylgt í kjöl­far stóra skjálft­ans. Skjálft­inn er sá stærsti á Reykja­nesi frá árinu 2013, en þá varð skjálfti að stærð­inni 5,2 í októ­ber­mán­uði og átti hann upp­tök sín skammt utan Reykja­ness. Þá er þetta stærsti skjálfti sem orðið hefur á Suð­ur­landi frá árinu 2008 en þá varð skjálfti upp á 5,3 sem átti upp­tök sín skammt frá Hvera­gerði. 

Alþingi: Sitjið rólegir

Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um tjón af völdum skjálft­ans en ljóst er að fólk er mjög skekið. Þannig brá þing­manni Pírata, Helga Hrafni Gunn­ars­syni, aug­ljós­lega tals­vert þegar skjálft­inn reið yfir meðan hann stóð í ræðu­stól Alþingis.  Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, var hins vegar hinn róleg­asti. „Sitjiði rólegir, sitj­iði rólegir,“ sagði Stein­grímur á meðan að Helgi Hrafn tók til fót­anna.

Helgi Hrafn sér spaugilegu hliðina

Samkvæmt leið­bein­ingum Almanna­varna við jarð­skjálftum brást Helgi Hrafn ekki rétt við í þessu til­viki. Almanna­varnir leggja áherslu á að halda eigi kyrru fyrir, sé fólk inn­an­dyra, fara undir borð eða rúm og verja höfuð og háls. Halda ætti sig frá gluggum.

Helgi Hrafn virð­ist þó hafa jafnað sig fljótt á skjálft­anum en á Twitter situr hann undir skensi fyrir við­brögð sín. Hann svarar þó vel fyrir sig og segir kersknis­lega að hann biðj­ist afsök­unar á að hafa ekki komið Stein­grími J. til bjargar.

Forsætisráðherra í beinni útsendingu

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var í beinu við­tali við Washington Post á þegar skjálft­inn reið yfir. Var for­sæt­is­ráð­herra greini­lega mjög brugðið þegar allt lék skyndi­legaá reiði­skjálfi. „Oh my good, there‘s an earthquake,“ sagði Katrín við blaða­mann blaðs­ins og bætti svo við: „Well, this is Iceland, sorry about that.“

Búast við eftirskjálftum

Athuga­semd jarð­vís­inda­manns á Veð­ur­stofu Íslands: Klukkan 13:43 varð stór skjálfti á Reykja­nesi Fyrsta stærð­ar­mat er að skjálft­inn hafi verið af stærð M5.5 um 7 km vestur af Kleif­ar­vatni. Fjöl­margir eft­ir­skjálftar hafa fylgt í kjöl­farið.

Almanna­varnir hafa gefið út eft­ir­far­andi til­kynn­ingu vegna skjálft­ans:Vegna jarð­skjálfta sem fannst á suð­vest­ur­horni lands­ins. Fyrstu upp­lýs­ingar frá Veð­ur­stofu Íslands segja að hann hafi verið af stærð­inni 5,5 og á upp­tök sín 6 km. vestan við Kleif­ar­vatn. Búast má við eft­ir­skjálftum.

Almanna­varnir hvetja fólk til þess að kynna sér við­brögð eftir jarð­skjálfta. Þau má sjá hér.

Bráða­brigða­mæl­ingin hefur nú verið upp­færð og nú er talið að skjálft­inn hafi verið um 5,7 að stærð sam­kvæmt vef­síðu Veð­ur­stof­unnar.

Leið eins og það væri að líða yfir hana

Á Flateyri fundu Ingi­björg Guð­munds­dóttir, skóla­stjóri Lýð­skól­ans og Helena Jóns­dóttir, verk­efna­stjóri Flat­eyrar fyrir skjálft­anum. „Þetta var mjög fyndið,“ segir Helena og heldur áfram. „Ég er með lít­inn tölvu­skjá fyrir framan mig hérna á skrif­stof­unni. Ég hall­aði mér fram á borðið og setti hend­urnar undir höku og allt í einu fannst mér eins og það væri að líða yfir mig. Svo aftur þremur eða fjórum sek­úndum síðar fannst mér aftur vera að líða yfir mig en hélt áfram að vinna. Svo heyrði ég þá hérna frammi vera að tala um að það hefði orðið jarð­skjálfti.“ Ingi­björg segir hins­vegar að hún hafi ekki fundið mikið fyrir skjálft­anum. „Þetta var nú bara eins og bíll að keyra fram hjá,“ segir hún.

Borgarfulltrúar hlupu út „í panikki“

Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, hljóp út af borg­ar­stjórn­ar­fundi ásamt fjórum öðrum borg­ar­full­trúum. „Stór hluti af salnum er gluggi en allt glerið titr­aði og skalf. Svo hangir járn­tjald úr loft­inu svo við vildum forða okkur út úr salnum,“ segir hún í sam­tali við Stundina. Aldrei áður hefur Kristín orðið hrædd við jarð­skjálfa en nú hafi hún orðið hrædd. Á Twitter ritar hún að borg­ar­full­trú­arnir hafi verið skelk­aðir og að þeir hafi hlaupið um í „panikki.

Kötturinn með áfallastreituröskun

Elísabet Brynjars­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur hjá Frú Ragn­heiði, hljóp undir borð þegar hún fann fyrir skjálft­anum. Hún var að vinna að heiman við að svara tölvu­póstum þegar hún fann fyrst fyrir litlum skjálfta. „Ég er alin upp hérna í Reykja­vík svo maður er ekki að kippa sér upp við litla skjálfta,“ segir hún.

Þegar Elísabet fann stærri skjálft­ann varð hún hrædd og ákvað að koma sér undir borð. „Það sem verra er að kött­ur­inn minn sem ég fékk ætt­leidd­ann frá Villi­köttum er með áfallastreituröskun og hún varð mjög hrædd.“

Kisi liggur nú í sóf­anum umvaf­inn teppum og Elísabet er orðin öllu rólegri. Það fyrsta sem Elísabet gerði þegar skjálft­anum lauk var að hringja í sína nán­ustu og athuga með þeirra líðan. „Ætli það sé ekki hjúkr­un­ar­fræð­inga hjartað, að athuga fyrst með alla aðra og taka svo stöð­una á sjálfri sér?“

Varaði við stórum skjálftum 

Fyrir tæpum mán­uði síðan var­aði Frey­steinn Sig­munds­son, jarð­eðl­is­fræð­ingur við Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands, við því í sam­tali við Speg­il­inn á RÚV að íbúar á höfðu­borg­ar­svæð­inu og Reykja­nesskaga þyrftu að búa sig undir stóran skjálfta af stærð­inni 6 til 6,5. Grannt væri fylgst með fimm eld­stöðvum, Bárða­bungu, Grím­svötnum, Heklu, Kötlu og Reykja­nesskaga. Á Reykja­nesskaga hefði síð­asta ár ein­kennst af sam­spili kviku­hreyf­inga og jarð­skjálfta­virkni. Háspenna væri á fleka­skilum. 

Jarð­skjálft­inn í dag var ekki svo stór, en hann var engu að síður svo öfl­ugur að margir lýstu áhrifum hans á sam­fé­lags­miðlum, jafn­vel ótta. Eft­ir­far­andi myndir voru teknar í Krónunni úti á Granda í kjöl­far skjálft­ans. 

Mikil umræða á samfélagsmiðlum

Fjöl­margir hafa tjáð sig um skjálft­ann á sam­fé­lags­miðlum. Þannig rifjar Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, upp á Facebook sögu af því þegar að sam­flokks­maður hans, Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra, stóð í ræðu­stóli Alþingis þegar harður skjálfti reið yfir. Mun Guð­mundur Árni hafa sagt að lok­inni ræðu: „Helvítis hörkuræða var þetta hjá mér! - Húsið bók­staf­lega skalf!“

Sumir eru þó rólegri en aðrir og gera bara grín að skjálft­anum, eins og Kristján Freyr Hall­dórs­son, sem vísar í þekkt minni af fyrri tíð og jafn­framt í nútímapóli­tík.

Þá er aug­ljóst að það skiptir máli í hvaða aðstæðum fólk er þegar það upp­lifir skjálfta sem þennan, eins og Karítas M. Bjarka­dóttir lýsir.

Heiðrún Helga Bjarna­dóttir sat við píanóið þegar skjálft­inn reið yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár