Mataræði og neysla vega meira en umferðin í Reykjavík

Bann við meng­andi bílum og upp­bygg­ing Borg­ar­línu mun minnka veru­lega mælt kolefn­is­spor í Reykja­vík.

Bílaumferð
Bíla­um­ferð Stærsti áhrifa­vald­ur­inn í mæl­ingum EFLU á kolefn­is­spor­inu í Reykja­vík er umferð einka­bíla, en ómæld mat­ar­neysla og önnur neyslu­drifin mengun er þó mun meiri. Mynd: Shutterstock

Mikil tæki­færi eru í því að bæta upp­lýs­inga­gjöf varð­andi kolefn­islosun Reyk­vík­inga, sam­kvæmt minn­is­blaði Eflu um lofts­lags­bók­hald Reykja­vík­ur­borgar fyrir árið 2019.

Í minn­is­blað­inu kemur fram að greind losun sé lang­mest frá bíla­um­ferð, eða 280 þús­und tonn. Hins vegar má gera ráð fyrir því að mat­ar­neysla leiði af sér kolefn­is­spor upp á 451 þús­und tonn og önnur neysla og losun upp á 484 þús­und tonn til við­bótar. Kolefn­is­bók­hald borg­ar­innar nær hins vegar ekki yfir þessi gildi.

Þegar litið er til þeirrar los­unar sem bók­haldið nær yfir má sjá að stærstur hluti útblást­urs á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum innan borg­ar­marka Reykja­víkur, eða vegna starf­semi innan borg­ar­marka, á sér stað vegna sam­gangna. Sam­göngur í heild sinni vega 52 pró­sent af allri skrá­settri losun í Reykja­vík eða 338.161 tonni CO2 ígilda. Næst á eftir sam­göngum í losun er bygg­ing­ar­iðn­aður sem nemur 15 pró­sentum.

Stærsti hluti los­unar sem rekja má til sam­gangna er vegna  fólks­bif­reiða, eða 204.061 tonn CO2 ígilda. Til sam­an­burðar má nefna að losun sendi­bíla nemur 26 þús­und tonnum CO2 ígilda.

Þá kemur fram að kolefn­islosun búfjár nemur um 2.800 tonn innan borg­ar­markanna. Þar eru með­taldar 43 mjólk­ur­kýr, 192 kindur og 2.240 grísir, en þeir síð­ast­töldu gefa frá sér 477 tonn koltví­sýr­ingsí­gilda, um 213 kíló hver grís. Þá er um leið ljóst að útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda tengd land­bún­aði af völdum borg­ar­búa er mun meiri en verður til innan borg­ar­markanna.

Binding vegna nýlegrar skóg­ræktar jafn­gildir hins vegar fer­földum útblæstri alls búfjár á borg­ar­land­inu, eða 10.500 tonn.

Þegar horft er á kolefn­is­bók­hald Reykja­víkur án neyslu er hins vegar ljóst, að mati Eflu, að fram­tíðin býður upp á minni losun. „Aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum kveður á um að sala einka­bíla sem keyra ein­göngu á bens­íni eða dísil muni verða bönnuð frá og með árinu 2030. Ætla má að þessi þróun muni senni­lega ger­ast fyrst í Reykja­vík þar sem inn­viðir fyrir raf­magns­bíla eru komnir lengst á veg. Einnig á þessi þróun við inn­leið­ingu almenn­ings­sam­gangna án jarð­efna­elds­neytis, sér­stak­lega með til­komu Borg­ar­línu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár