264 milljarða króna halli á rekstri ríkissjóðs

Gert er ráð fyrir að 900 millj­arða halli verði á rekstri rík­is­sjóðs næstu fimm árin. Yfir 100 millj­arðar króna fara til greiðslu atvinnu­leys­is­bóta, bæði í ár og á næsta ári. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar í dag.

264 milljarða króna halli á rekstri ríkissjóðs
Rekstur rík­is­ins fjár­magn­aður með lán­töku Fjár­mála­ráð­herra segir að halda eigi úti opin­berri þjón­ustu með lán­töku á meðan að efna­hag­skreppan í kjöl­far Covid-19 far­ald­urs­ins gengur yfir. Mynd: Pressphotos

Rík­is­sjóður verður rek­inn með 264 millj­arða króna halla á næsta ári. Gert er ráð fyrir að hall­inn verði 900 millj­arðar króna á næstu fimm árum, á tíma­bili fjár­mála­á­ætl­unar 2021-2025. Yfir 100 millj­arðar króna munu fara til greiðslu atvinnu­leys­is­bóta í ár og á næsta ári.

Þetta eru meðal lyk­iltalna í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra er að kynnti í dag.

Skatt­tekjur rík­is­sjóðs verða 52 millj­örðum lægri í ár en hefði verið, með aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar. Ekki á að bregð­ast við efna­hag­skrepp­unni með nið­ur­skurði eða auk­inn tekju­öflun með skatt­kerf­inu heldur með því að rík­is­sjóður taki lán til að fjár­magna rekstur hins opin­bera.

Bjarni sagði að hverjum manni væri aug­ljóst að hrun hefði orðið í afkomu rík­is­sjóðs. „Við höfum ekki til lengri tíma efni á því að halda úti þeirri opin­beru þjón­ustu sem við gerum í dag. Við gerum það engu að síður vegna þess að við trúum því að þetta sé tíma­bundið ástand og við ætlum að vinna okkur út úr því.“

„Við höfum ekki til lengri tíma efni á því að halda úti þeirri opin­beru þjón­ustu sem við gerum í dag“

Tekjum rík­is­sjóðs verður því leyft að falla en styrk staða rík­is­sjóð nýtt til að takast á við krepp­una, sagði Bjarni. Und­an­farin ár hafi skuldir rík­is­sjóðs lækkað veru­lega og því sé rík­is­sjóður vel í stakk búinn til að takast á við verk­efnið. Erlend staða rík­is­sjóðs sé sterk, verð­bólga sé og hafi verið lág og stöðug og hag­stjórn hafi verið agaðri en áður var.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu verða settir 430 millj­arðar króna í aðgerðir til að styðja við hag­kerfið. Stóra mark­miðið sé að verja störf og skapa störf. Á þessu ári og því næsta muni þurfa að greiða yfir 100 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bætur. Gert er ráð fyrir að árin þar á á eftir verði enn greiddir yfir og um 40 millj­arðar króna í atvinnu­leys­is­bætur, nema því aðeins að hag­kerfið taki við sér af krafti. 

Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun áranna 2021-2025 stefnir á að halli rík­is­sjóðs verði á tíma­bil­inu 900 millj­arðar króna. Stefnt er að því að stöðva halla­rekst­ur­inn þá. 

Samkvæmt þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands fyrir árin 2020-2026, sem birt var í morgun, dregst lands­fram­leiðsla saman um 7,6 pró­sent í ár. Bjarni sagði það mesta sam­drátt síð­ustu 100 ára. Samkvæmt spánni er útlit fyrir að hag­vöxtur verði 3,9 pró­sent á næsta ári. Bjarni benti enn fremur á að síð­ast­lið­inn ára­tug hefðu Íslend­ingar upp­lifað sam­fellda aukn­ingu í kaup­mætti launa. Samkvæmt spám væri gert ráð fyrir að sú þróun gæti haldið áfram, héld­ist friður á vinnu­mark­aði og verð­bólga héld­ist áfram lág. Lítið þyrfti þó útaf að bera til að þær spár myndu ekki ræt­ast. 

90 millj­arða króna sam­dráttur verður á tekju­hlið rík­is­ins sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu verður tekju­skattur lækk­aður um næstu ára­mót. Lækkunin verður í lægsta tekju­þrep­inu og nýtis upp allan tekju­stig­ann en gagn­ist þó best þeim sem lægstar tekj­urnar hafi. Lækkun á tekjum rík­is­sjóðs vegna þess­ara skatt­kerf­is­breyt­inga, sem þegar höfðu verið kynntar, nemur 14,5 millj­örðum króna.  90 millj­arða króna sam­dráttur verður á tekju­hlið rík­is­ins. 

Rík­is­stjórnin kynnti í vik­unni aðgerða­á­ætlun í átta liðum til að auka stöð­ug­leika. Meðal breyt­inga þar eru tíma­bundin lækkun trygg­inga­gjalds út næsta ár. Tekjur rík­is­sjóðs vegna þess munu lækka um 4 millj­arða króna. Þá verður átakið Allir vinna sömu­leiðis fram­lengt út næsta ár, en með því verður full end­ur­greiðsla virð­is­auka­skatts vegna fram­kvæmda tryggð. Áætlað er að kostn­aður vegna end­ur­greiðslna nemi um 8 millj­örðum króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár