Mótmælandi dreginn fyrir dóm í dag fyrir að óhlýðnast lögreglunni

„Það hvarfl­aði ekki að mér að ég væri að brjóta lög,“ sagði Kári Orrason fyrir dómi í dag, en honum er gert að sök að hafa óhlýðn­ast skip­unum lög­reglu þegar hann mót­mælti með­ferð á hæl­is­leit­endum. Fimm aðgerð­ar­sinnar úr röðum No Borders voru hand­teknir 5. apríl 2019 við mót­mæli í and­dyri dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins eftir árang­urs­lausar til­raunir til að ná fundi með ráð­herra.

Mótmælandi dreginn fyrir dóm í dag fyrir að óhlýðnast lögreglunni
Kári Orrason mót­mæl­andi Við dyr Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í dag á leið í aðal­með­ferð máls gegn honum þar sem honum er gefið að sök að hafa óhlýðn­ast lög­reglu. Mynd: Gabríel Benjamin

Mál mót­mæl­anda úr sam­tök­unum No Borders er rekið fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Kári Orrason, 22 ára gam­all bar­áttu­maður fyrir rétt­indum flótta­fólks, er ákærður fyrir að óhlýðn­ast fyr­ir­mælum lög­reglu í and­dyri dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í apríl fyrir ári. Hann seg­ist hafa verið að nýta rétt sinn til mót­mæla og styðja fólk í við­kvæmri stöðu. 

Fyrir dómi rétt í þessu lýsti Kári atvik­unum. „Lög­reglan kemur inn, læsir hurð­inni og stuttu síðar erum við hand­tekin.“ Hann sagð­ist ekki hafa gert sér í hug­ar­lund að hann væri brot­legur. „Það hvarfl­aði ekki að mér að ég væri að brjóta lög.“

Kári, ásamt öðrum aðgerð­ar­sinnum úr röðum No Borders, mætti 5. apríl 2019 í and­dyri dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til að krefj­ast fundar með þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, til að ræða bágar aðstæður fólks sem sækir um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Mótmælin fóru fram eftir margra mán­aða til­raunir mót­mæl­end­anna til að bóka fund með ráð­herra og vekja athygli á mál­efn­inu. Meðal ann­ars voru sam­tökin búin að skila inn erindi með Rauða Kross­inum og afhenda ráðu­neyt­inu und­ir­skrifta­lista.

Fimm ákærðir fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu

Hópurinn neit­aði að færa sig úr and­dyr­inu og því voru fimm hand­teknir og færðir í burtu í járnum. Ráðu­neytið var opið á þessum tíma og hóp­ur­inn hindr­aði ekki aðgengi eða störf starfs­fólks­ins. Hópurinn var fyrst ásak­aður um hús­brot, en ári síðar birt­ist Kára og hinum mót­mæl­end­unum ákæra fyrir að óhlýðn­ast fyr­ir­mælum lög­reglu.

Stundin ræddi við einn þeirra sem var hand­tek­inn sem segir lög­regl­una aðeins hafa tjáð sig á íslensku. Þegar lög­reglan var beðin um að tala ensku svo allir við­staddir gætu skilið það sem hún sagði á varð­stjóri að hafa svarað að hér á landi væri bara töluð íslenska. Sami ein­stak­lingur full­yrðir að á leið­inni á lög­reglu­stöð­ina, með þremur mót­mæl­endum í bif­reið­inni, hafi lög­reglu­maður sagt að ef hann fengi skipun um að skjóta með­limi hóps­ins í haus­inn myndi hann gera það án umhugs­unar.

„Ég var að reyna að breyta sam­fé­lag­inu til hins betra“

Í opnu bréfi til Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem Kári birti hjá Frétta­blað­inu 23. júlí síð­ast­lið­inn seg­ist hann hafa verið að berj­ast fyrir bættum kjörum fólks í við­kvæmri stöðu. „Ég var að nýta rétt minn til mót­mæla og stuðla að því að fólk í erf­iðri og við­kvæmri stöðu gæti komið sínu fram“, skrifar hann. „Ég var að reyna að breyta sam­fé­lag­inu til hins betra. Er það ekki borg­ara­leg skylda okkar allra?“

Tekist á um réttinn til mótmæla

Réttur til að koma saman og mót­mæla er var­inn í stjórn­ar­skrá Íslands. Þannig segir í stjórn­ar­skrá að menn hafi rétt á að koma saman vopn­lausir. Samkvæmt dómafor­dæmum, stjórn­ar­skrá og anda lag­anna er ekki heim­ilt að stöðva mót­mæli nema þau telj­ist ganga of langt.

Skylda almenn­ings til að hlýða fyr­ir­mælum lög­reglu nær aðeins til þess ef óhlýðni myndi stefna almanna­hags­munum í hættu eða leiða til lög­brots. Lög­reglu­menn hafa, sam­kvæmt lög­reglu­lögum, heim­ild til að „beita valdi við fram­kvæmd skyldu­starfa sinna“. Sú heim­ild er þó tak­mörkuð í sömu lögum: „Aldrei mega þeir þó ganga lengra í beit­ingu valds en þörf er á hverju sinni.“

Í lög­reglu­lögum kemur fram að lög­regl­unni er „heim­ilt að hafa afskipti af borg­ur­unum til að halda uppi almanna­friði og alls­herj­ar­reglu eða koma í veg fyrir yfir­vof­andi röskun til að gæta öryggis ein­stak­linga eða almenn­ings eða til að afstýra afbrotum eða stöðva þau“. Hins vegar er lög­regl­unni, eins og öðru opin­beru stjórn­valdi, gert að gæta með­al­hófs.

Þá er lög­reglu­mönnum óheim­ilt að beita harð­ræði. „Ekki mega þeir beita sak­aðan mann harð­ræði fram yfir það sem lög heim­ila og nauð­syn­legt er til þess að vinna bug á mót­þróa hans gegn lög­mætum aðgerðum né á annan hátt beita hann ólög­mætri þvingun í orði eða verki, svo sem með hót­unum.“

Aðal­með­ferð máls­ins fer fram fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur við Lækj­ar­torg frá klukkan 13.15 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár