Eignir íslenskra félaga Ratcliffe nema milljörðum

Fjár­fest­ingar breska auð­kýf­ings­ins James Ratcliffe á Íslandi nema nú minnst 5,8 millj­örðum króna, sem er sama upp­hæð og rík­is­sjóður lagði í mála­flokk­inn „sjáv­ar­út­vegur og fisk­eldi“ í ár. Nýjustu tvær jarð­irnar voru keyptar á 133 millj­ónir í fyrra.

Eignir íslenskra félaga Ratcliffe nema milljörðum
James Ratcliffe Breski auð­kýf­ing­ur­inn hefur lagst gegn laga­breyt­ingum sem þrengja að jarða­kaupum. Mynd: ANDY BUCHANAN / AFP

Nýjustu jarðir sem vitað er til þess að breski auð­kýf­ing­ur­inn James Ratcliffe hafi keypt á Íslandi kost­uðu 133 millj­ónir króna og bæt­ast við eigna­safn sem er bók­fært á millj­arða króna. Nema fjár­fest­ingar Ratcliffe í land­ar­eignum og veiði­rétt­indum á Íslandi að minnsta kosti and­virði 5,8 millj­arða íslenskra króna.

Þetta má lesa úr árs­reikn­ingum þess fjölda félaga sem heldur utan um jarðir hans á Íslandi og móð­ur­fé­lags þeirra Halicilla Limited. Í árs­reikn­ingi móð­ur­fé­lags­ins fyrir árið 2018 kemur fram að Ratcliffe hafi tvö­faldað það fjár­magn sem hann hafði per­sónu­lega lánað félag­inu til fjár­fest­inga á Íslandi, en hann hyggst ekki ætla að sækj­ast eftir end­ur­greiðslu á lán­inu. Fór upp­hæðin úr 15,4 millj­ónum breskra punda í upp­hafi árs 2018 í 32,3 millj­ónir í lok þess, eða úr and­virði 2,7 millj­arða króna í 5,8 millj­arða.

Til sam­an­burðar er 5,8 millj­arðar sú upp­hæð sem rík­is­sjóður lagði til mála­flokks­ins „sjáv­ar­út­vegur og fisk­eldi“ á fjár­lögum 2020.

Upphæðin er sögð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár