Strætó hefur ekki trú á metani sem orkugjafa

Aðeins tveir met­an­vagnar hafa verið keyptir frá árinu 2010. Strætó veðjar á raf­magns­vagna. Vigdís Hauks­dóttir telur málið lykta af spill­ingu en meiri­hlut­inn í borg­ar­ráði segir hana setja fram furðu­legar dylgjur um sam­særi Sam­fylk­ing­ar­innar með Kín­verjum.

Strætó hefur ekki trú á metani sem orkugjafa
Veðja á raf­magnið Strætó veðjar á raf­magns­vagna til fram­tíðar. Mynd: Davíð Þór

Strætó bs. hefur frá árinu 2010 aðeins keypt tvo stræt­is­vagna sem knúnir eru áfram með metangasi. Árið 2010 var tekin ákvörðun í stjórn Sorpu bs. um að hefja upp­bygg­ingu gas og jarð­gerð­ar­stöðvar í Álfsnesi, stöðvar sem á að fram­leiða nægi­legt metan­gas árlega fyrir á bil­inu 6 til 8 þús­und bif­reiðar. Bæði fyr­ir­tækin eru byggða­sam­lög í eigu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og svo virð­ist því sem stjórn Strætó hafi litla trú á metangasi sem fram­tíðar elds­neyti fyrir flota sinn.

Frá árs­byrjun 2010 hefur Strætó keypt 59 stræt­is­vagna, tvo met­an­vagna sem fyrr segir, fjórtán raf­knúna vagna og 43 díselknúna vagna. Í svari Strætó við fyr­ir­spurn Vigdísar Hauks­dóttur, áheyrn­ar­full­trúa Mið­flokks­ins í borg­ar­ráði, kemur fram að miðað við útreikn­inga á 10 ára líf­tíma, við útboð árið 2017, hafi raf­magns­vagnar verið hag­kvæm­asti kost­ur­inn, jafn­vel þó þeir séu um þriðj­ungi dýr­ari en met­an­vagnar.

Reynslan af metanvögnum ekki góð

Í ítar­legri umfjöllun um mál­efni jarð­gerð­ar­stöðv­ar­innar GAJA í Stund­inni í maí síð­ast­liðnum kom fram að Strætó myndi ekki ráð­ast í frek­ari kaup á met­an­vögnum fyrr en búið yrði að bæta inn­viði fyrir metan­gas á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Um 40 mín­útur taki að fylla hvern vagn, aðeins sé ein met­an­stöð sem hægt sé að not­ast við og hún sé uppi á Bílds­höfða, fjarri höf­uð­stöðvum Strætó, sem sé mik­ill ókostur þar eð fylla þurfi á vagn­ana á nótt­unni. Þá sé reynslan af met­an­vögnum ekki góð, einkum eigi það þó við um tvo eldri vagna en þeir tveir aðrir sem Strætó eigi og voru keyptir eftir 2010 hafi þó reynst betur.

Það metan­gas sem ekki nýt­ist sem elds­neyti á bíla, en skráðir voru 1.333 slíkir á land­inu öllu á árunum 2009 til 2018, er brennt án þess að nýt­ast til nokk­urs.

Vigdís segir Strætó vera tilraunadýr

Á fundi borg­ar­ráðs var svar Strætó lagt fram. Vigdís lagði þar fram bókun þar sem hún taldi stórfurðu­legt að á sama tíma og unnið hefði verið að veru­lega auk­inni fram­leiðslu á met­ani hjá einu fyr­ir­tæki borg­ar­innar, Sorpu, þá virt­ist annað fyr­ir­tæki borg­ar­innar, Strætó, engan áhuga hafa á að nýta það sama metan. Enn sé keyrð sú stefna að fest kaup á dísel­vögnum sem mengi sem mest.

Þá benti Vigdís á í bókun sinni að Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og utan­rík­is­ráð­herra, væri stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins Yutong Eurobus Scandinavia AB, umboðs­að­ila raf­magns­vagn­anna sem Strætó hefði keypt. „Hags­mun­irnir eru það miklir fyrir umboðs­að­il­ann að Strætó bs. er til­rauna­dýr fyrir mark­aðs­setn­ingu vagn­anna á Norð­ur­lönd­unum og Reykja­vík­ur­borg undir stjórn Dags B. Egg­erts­sonar tekur þátt í því.“

Í gagn­bókun borg­ar­ráðs­full­trúa meiri­hlut­ans í borg­ar­ráði segir að kaup á raf­magns og met­an­vögnum frá árinu 2016 séu hluti af umhverf­is­stefnu Strætó, sem geri ráð fyrir kolefn­is­hlut­leysi árið 2030. Aðeins einn dísel­vagn hafi verið keyptur síðan 2016 og því veki ummæli Vigdísar furðu. „Í sömu andrá er gagn­rýnt að keyptir séu inn raf­magns­vagnar og dylgjað um að um stórt sam­særi Sam­fylk­ing­ar­innar með Kín­verjum sé að ræða.“

Vigdís segir í sam­tali við Stundina að stað­reyndir séu ekki sam­særi. Össur starfi fyrir Youtong Eurobus Scandinavian AB, og sé flokks­fé­lagi Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra. „Þetta lyktar af spill­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár