Viðteknum sannindum kollvarpað: Hundar eru ekki komnir af úlfum

Gena­rann­sóknir síð­ustu ára hafa sýnt fram á að hundar eru ekki „tamdir úlfar“ heldur eiga hundar og úlfar sam­eig­in­lega for­móður sem nú er útdauð

Viðteknum sannindum kollvarpað: Hundar eru ekki komnir af úlfum

Það hefur verið á vit­orði vís­inda­manna um skeið en fróð­leik­ur­inn þó lík­lega ekki seytlað nóg­sam­lega út til almenn­ings:

Hundar eru ekki, þvert oní það sem lengi var talið, afkom­endur úlfa. Þeir eru vissu­lega náskyldir úlfum, en ekki sem afkom­endur þeirra heldur frændur.

Eftir að þró­un­ar­kenn­ingin fest­ist í sessi virt­ist upp­runi hunda liggja ljós fyrir. Úlfa­hópar fóru að halda til í námunda við bústaði stein­ald­ar­manna því þar gátu þeir átt von á að næla sér í leifar af bráð­inni sem menn­irnir veiddu.

Menn­irnir hændu smátt og smátt að sér eitt­hvað af úlfum og gerðu þá sér hand­gengna.

Tömdu þá, með öðrum orðum.

Og fóru svo, ómeð­vitað kannski í fyrstu en síðan mark­visst og ákveðið, að rækta upp hina ýmsu og ólíku eig­in­leika úlfs­ins, uns komin var ný teg­und fram á sjón­ar­sviðið, hund­ur­inn, og margar ólíkar und­ir­teg­undir hans.

Ekki úlfur

Þessi mynd kann að vísu að vera rétt í stærstu drátt­unum en teg­undin sem menn löð­uðu að sér – eða lað­að­ist að mönnum – var ekki úlfur.

Þetta kom fram í ýmsum rann­sóknum sem kynntar voru upp úr 2010 (og hér er til dæmis sagt frá einni þeirra) þar sem rann­sak­aðir voru nokkrir hópar úlfa og hunda.

Nið­ur­staða þess­arar rann­sóknar var að leiðir hunda og grá­úlfa nútím­ans hefðu skilið fyrir 9 til 34 þús­und árum, og hundar væru ekki komnir af nútíma­úlfum í neinum skiln­ingi.

Teg­und­irnar ættu sam­eig­in­legan for­föður eða -móður, en sú óþekkta teg­und væri dáin út og ekk­ert hægt að segja um hana svo óyggj­andi væri.

Leiðir skildu fyrir allt að 41.000 árum

Frekari rann­sóknir síðan hafa stað­fest þetta, nema hvað nú telja flestir að leið­irnar hafi skilið ívið fyrr, eða fyrir 36 til 41 þús­und árum.

Það er að segja áður en hundar og menn rugl­uðu saman reitum. Það er nokkuð sam­dóma álit vís­inda­manna að það hafi gerst fyrir rúmum 15 þús­und árum.

Umdeild kenn­ing hermir raunar að það hafi gerst löngu fyrr eða fyrir 35 þús­und árum. En sú kenn­ing hefur ekki öðl­ast almennt fylgi.

Skiln­aður úlfa og „for-hunda“ varð sem sé án afskipta manns­ins, sam­kvæmt hinum nýja sjón­ar­hól.

Til­tölu­lega skömmu eftir að leiðir úlfa og for­móður hunds­ins skildu, þá gengu báðar teg­und­irnar í gegnum erf­ið­leika og fækk­aði mikið. Ástæð­urnar voru sjálf­sagt veð­ur­fars­legar en ísöld var þá í gangi.

ChihuahuaHver gæti líka látið sér detta í hug að þetta kríli sé komið af úlfum?

Þær náðu sér þó báðar á strik aftur og raunar er talið að partur af því hve hundar og úlfar séu svip­aðir eigi rót að rekja til kyn­blönd­unar eftir að teg­undir úlfa og hunda­móður skild­ust að, og voru á upp­leið aftur eftir fyrr­nefnda erf­ið­leika eða „flösku­háls“.

En hver var þá þessi teg­und sem allir hundar eru nú komnir af?

Vissu­lega var þar um að ræða ein­hvers konar úlf og sjálf­sagt hefði teg­undin komið okkur nokkuð kunn­ug­lega fyrir sjónir.

En hversu svipuð teg­undin var nútíma­úlfum – eða nútíma­hundum – er ekki gott að segja.

Í rann­sókn sem kynnt var í byrjun þessa árs er bent á aðra fárra miss­era rann­sókn þar sem líkum var leitt að því að hin óþekkta for­móðir hunds­ins kunni að hafa þró­ast á tíma og svæði þar sem rakt var og hlýtt.

Þau skil­yrði gætu hafa verið ýtt undir smærri vöxt en hinna stóru grá­úlfa.

Svo for­móðir hunds­ins gæti hafa verið á stæð við venju­legan „þorps­hund“ eins og kom­ist er að orði í annarri rann­sókn­inni.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár