Hvað er hamingjan í huga þínum?

Ham­ingjan er ekki bara einn hlutur eða ein til­finn­ing. Ham­ingjan er hjá manni sjálfum og það er eng­inn annar sem býr til ham­ingj­una fyrir mann.

Hvað er hamingjan í huga þínum?

Í huga mínum er ham­ingjan ekki bara einn hlutur eða ein til­finn­ing. Ham­ingjan er hjá manni sjálfum og það er eng­inn annar sem býr til ham­ingj­una fyrir mann.

Hamingja er oft hug­ar­á­stand og þegar maður er ham­ingju­samur sér maður feg­urð­ina og ást­ina sem umlykur mann og ham­ingjan verður meiri og sterk­ari.

Anna Steinunn Jóns­dóttir

Ég held að það sé frá­bært að geta vaknað á hverjum morgni og ákveðið að vera ham­ingju­samur.

Mín mesta ham­ingja er að sjá börnin mín og barna­börn verða ham­ingju­samir og heil­brigðir ein­stak­lingar og felst ham­ingja mín í góðu og ást­ríku sam­bandi við þau.

Guðný Ragn­ars­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingurHeiða Helga­dóttir

Að fylgja inn­sæ­inu færir mér þá ham­ingju sem er sér­sniðin fyrir mig. Daglega hlusta ég á inn­sæið mitt til að vita hvað ég vil. Ég fylgist með líðan, til­finn­ingum og hugs­unum og veit að „það sem er gott er gott“ og „það sem er vont er vont“. Sem dæmi, ef mér líður vel í sam­skiptum við mann­eskju þá vel ég að hitta hana aftur (það er „gott“) og ef mér líður óþægi­lega í sam­skiptum við mann­eskju, þá dreg ég úr sam­skipt­unum (það er „vont“). Þannig færi ég mark­visst það sem er gott inn í líf mitt til að vera ham­ingju­söm.

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks ÍslandsHeiða Helga­dóttir

Fyrir mér felst ham­ingjan í því að vera sáttur í eigin skinni, koma vel fram við sjálfan sig og aðra og læra að líta á lífið sem eina stóra veg­ferð. Alveg eins og stjörn­u­rnar njóta sín ekki nema fyrir til­stuðlan myrk­urs­ins, finnst mér hindr­anir í líf­inu geta verið stór hluti í því að skapa ham­ingju seinna meir, með því að sýna okkur eitt­hvað sem við vorum ann­ars ekki með­vituð um. Fyrir mér felst ham­ingjan í því að kunna að meta lífs­reynsl­una og minn­ing­arnar, þær góðu en líka þær sem eru ekki eins góðar, því það hefur allt mótað mig.

Sjøfn Har mynd­list­ar­maðurHeiða Helga­dóttir

Ham­ingjan er ynd­is­leg vellíðan sem teng­ist and­legu ástandi. Ham­ingjan er kafla­skipt og eru kafl­arnir eðli­lega mis­langir.

Ham­ingj­una finn ég sjálf meðal ann­ars úti í nátt­úr­unni með skynjun lita, lyktar og hljóðs, enda hef ég lagt áherslu á að mála mál­verk sem gleðja.

Hamingja teng­ist því að taka við vænt­um­þykju og ást frá fólk­inu sínu og með að virða/elska jörð­ina okkar og öll dýr sem og að hlusta á almættið. Ham­ingjan teng­ist líka því að gefa og kunna að þiggja.

Ver­ald­leg gæði eru hverful og því er heilla­væn­legt að hlúa að öllu lif­andi með þakk­læti og ekki taka góðri heilsu sem sjálf­sögðum hlut.

Hamingja er ástand sem þarf að rækta og við­halda, eins og jörð­ina okkar, og það þarf að grípa feg­urð­ina í öllu lif­andi.

Ýr Þrast­ar­dóttir fata­hönn­uðurHeiða Helga­dóttir

Að vera ham­ingju­samur er eilífð­ar­verk­efni. Ham­ingjan kemur og fer eftir því hvað maður leggur á sig til að öðl­ast hana. Ef maður nær að lifa í sátt við sig og sínar ákvarð­anir eykur það ham­ingj­una.

Hamingja felst í því að leysa verk­efni. Að gef­ast ekki upp þó að maður lendi á vegg. Ég er ham­ingju­söm­ust þega mér tekst að láta hug­mynd verða að veru­leika. Önnur ham­ingja felst svo í lík­am­legri áreynslu og ég hef gaman af því að reyna á þol­mörkin því það er svo góð til­finn­ing eftir á. Mesta ham­ingjan er samt lík­lega að geta deilt raunum sínum, góðum og slæmum, með mann­eskju sem maður elskar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár