Smalar gætu mögulega þurft að gista í tjöldum

Covid-19 faraldurinn hefur áhrif á göngur og réttir. Öllum sem taka þátt er skylt að hlaða niður smit­rakningar­appi almanna­varna. Mælst er til að áfengi verði ekki haft um hönd. „Þetta er ekki sama partýið sem verið er að bjóða í,“ segir framkvæmda­stjóri Land­samtaka sauðfjár­bænda.

Tveggja kinda bil
Tveggja kinda bil Hætt er við að göngur og réttir verði með breyttu sniði í haust frá því sem verið hefur. Mynd: Landssamtök sauðfjárbænda

Hætt er við að smala­mennska og réttar­störf í sveitum verði með all nokkuð breyttu sniði í haust frá því sem verið hefur. Ástæðan er vitanlega Covid-19 faraldurinn sem íslenskt þjóðfélag glímir nú við. Færra fólk verður við réttar­störf og í sveitum er nú verið að skipuleggja göngur með það að markmiði að tryggja eftir bestu getu að hægt verði að koma við öllum sótt­vörnum.

Lands­samtök sauðfjár­bænda hafa gefið út leið­beiningar vegna smala­mennsku og réttar­starfa. Meðal annars verður hámarks­fjöldi í réttum miðaður við 100 manns yfir 15 ára aldri og tryggja þarf að hægt sé eftir fremsta megni að halda tveggja metra regluna í fjalla­kofum þar sem smalar þurfa að dvelja. Meðal þess sem verið er að skoða er hvort smalar þurfi í einhverjum tilvikum að gista í tjöldum eða ferða­vögnum. Þá er öllum skylt að hlaða niður smit­rakningar­appi almanna­varna og mælst er til að áfengi verði ekki haft um hönd.

Gæti orðið erfitt að halda tveggja metra regluna

Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmda­stjóri Lands­samtaka sauðfjár­bænda, segir að þegar komið er á fjall í smala­mennsku muni ekki reynast flókið að halda tveggja metra regluna. „Það geta hins vegar skapast vandamál þar sem smalar þurfa að gista í gangna­kofum, fjalla­skálum, um langan tíma. Ábyrgðar­menn fjall­skila þurfa að leita allra leiða til að fara eftir þeim reglum sem gilda. Menn verða að reyna að tryggja öllum þetta nándarbil. Það átta sig hins vegar allir á því hvernig aðstæður eru í þessum kofum, þar er þétt setinn bekkurinn, og menn verða bara að viðhafa eins miklar smit­varnir og hugast getur. Menn verða að bera grímur og sótt­hreinsa sig svo sem kostur er en það er þó ljóst að vart verður hægt að uppfylla þessar nándar­reglur að fullu. Menn verða að byrja að hugsa þetta strax og þar sem hægt er að koma við ferða­vögnum eða tjöldum þá leiti menn allra leiða til að koma þeim við. Ef að veður leyfir gætum við séð það í fyrsta skipti í áraraðir að menn myndu sofa í tjöldum í göngum.“ Unnsteinn segir þó að víða séu menn í aðstöðu til að keyra heim og gista ekki í skálum.  

„Ef að veður leyfir gætum við séð það í fyrsta skipti í áraraðir að menn myndu sofa í tjöldum í göngum“

Unnsteinn segir að allir hafi fullan skilning á stöðu mála og um allt land sé fólk að skipuleggja þessi nauðsyn­legu haustverk sauðfjár­bænda. Menn hafi því óskað eftir skýrum reglum um það hvernig farið yrði að og leið­beiningarnar snúi að því. „Þessar leið­beiningar búa til eilítinn sveigjanleika varðandi tveggja metra regluna, enda hefur það sýnt sig núna allra síðustu daga að þetta er ekki alveg klippt og skorið. Í lok dags er það setningin „Við erum öll almanna­varnir“ sem að skiptir mestu máli í þessu og mikilvægt að menn fari af stað með því hugarfari.“

Bændur hafa áður þurft að bregðast við aðstæðum

Bændur hafa áður upplifað ýmislegt í smala­mennsku. Þannig gerði gríðarlegt óveður á Norður­landi snemma í september 2012 sem olli því að allt að 10.000 kindur grófust undir fönn. Ráðist var í umfangs­miklar björgunar­aðgerðir og vart var hægt að tala um hefð­bundna smala­mennsku víða það haust. Unnsteinn segir að bændur og þeir sem komi þeim til aðstoðar í smala­mennsku séu því vanir því að þurfa að aðlaga sig aðstæðum og spila eftir eyranu. „Þetta kerfi byggir á félagslegri samstöðu og þegar á hefur reynt þá er það mjög sveigjanlegt. Þetta verkefni í haust verður unnið á sama grund­velli.“

Líklega eilítið minni glaumur og gleði

Spurður hvort bændur hafi áhyggjur af því að erfitt geti reynst að manna göngur í haust, ekki bara vegna þeirra reglna sem þarf að fylgja heldur einnig vegna þess að fólk hiki við að taka þátt sökum óviss­unnar, segir Unnsteinn að það sé vissulega svo. „Það eru margir sem nefna það að þeir séu í vandræðum með að fá til sín sína vanalegu smala. Best er auðvitað ef hægt er að manna smala­mennsku í haust sem mest með fólki af svæðinu svo að minnka megi samgang milli svæða. Menn hafa áður lent í því að vera þunn­skipaðir í göngum en við höfum ekki þungar áhyggjur af því að ekki náist að smala megninu af fé af fjalli, ef veður verður gott í það minnsta.“

„Það eru margir sem nefna það að þeir séu í vandræðum með að fá til sín sína vanalegu smala“

Hætt er við að stemningin verði með nokkuð öðrum hætti í göngum og réttum í haust. Meðal annars er mælst til þess að ekki verði áfengi haft um hönd. Unnsteinn segir að sennilega verði eilítið minni söngur og glaumur í gangna­kofum og réttum nú en vant er. „Það verður færra fólk og það hefur áhrif. Þetta ákvæði er í takt við það sem almanna­varnir hafa gefið út á sínum fundum því að hæft hefur verið að rekja margt af þessum smitum til skemmtana­halds. Þetta er ekki sama partýið sem verið er að bjóða í. Það verða allir að átta sig á því að þarf að fara með allt öðru hugarfari í þetta verkefni en vanalega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár