Pitsa, fiskur í raspi, sósa, sósa og aftur sósa - Hver er þjóðarréttur Íslendinga?

Mat­reiðslu­menn og mat­gæð­ingar ræða hver hinn raun­veru­legi þjóð­ar­réttur Íslend­inga er.

Pitsa, fiskur í raspi, sósa, sósa og aftur sósa - Hver er þjóðarréttur Íslendinga?
Fiskur í raspi Margir álits­gjaf­anna nefndu fisk í raspi, en aðrir kjúklinga­súpu, lamba­kjöt eða sæl­gæti.

Hangi­kjöt og upp­stúfur, lamba­kjöt með brún­uðum kart­öflum? Kjötsúpa eða harð­fiskur með smjöri? Pylsa með öllu? Hvernig skil­greinum við þjóð­ar­rétt? Er hann alger­lega ein­stakur fyrir þá þjóð sem kennir sig við hann? Eða end­ur­speglar hann heldur mat­ar­smekk þjóð­ar­innar hverju sinni? Stundin skoðar málið og spyr um leið með hjálp lands­þekktra mat­reiðslu­meist­ara og mat­gæð­inga: Hver er hinn raun­veru­legi þjóð­ar­réttur Íslend­inga?

Uppruni eða vinsældir, hvað ræður? 

Ham­borg­ari hlýtur til dæmis að vera ótví­ræður þjóð­ar­réttur Banda­ríkj­anna og sömu­leiðis hljóta sænskar kjöt­bollur að vera þjóð­ar­réttur Sví­þjóðar. Það er bók­staf­lega í nafn­inu sænskar kjöt­bollur. En málið er auð­vitað flókn­ara. Réttir eru oftar en ekki stað­bundnir, fyrir utan þá stað­reynd að mjög sjaldan er til form­legur lög­bund­inn þjóð­ar­réttur sem væri þá á sama stalli og þjóð­fáni, þjóð­söngur eða skjald­ar­merki. Fyrir 50 árum hefði til dæmis nokkuð örugg­lega verið hægt að kalla grill­aðar pylsur þjóð­ar­rétt Þýska­lands. Í dag hins vegar er mjög erfitt að líta fram­hjá döner kebap …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár