Fjórða blað MYRKFÆLNI væntanlegt

Tónlistar­blaðið MYRKFÆLNI fjallar um íslenska jaðar­tónlist og miðar að því að draga hana úr skuggunum.

Gefa út blað um jaðartónlist
Gefa út blað um jað­ar­tón­list Þær Sólveig Matt­hildur og Kinnat Sóley hafa unnið saman að blað­inu MYRKFÆLNI frá 2017. Mynd: Dean Kemball

Jaðar­tónlistar­blaðið MYRKFÆLNI hefur komið út á hverju ári frá 2017, en fjórða blaðið er væntanlegt 21. ágúst næst­komandi. Í blaðinu er rýnt í stefnur og strauma í íslenskri jaðar­tónlist og vakin athygli á djörfu tónlistar­fólki sem fær annars ekki mikla umfjöllun í megin­straums-fjöl­miðlum.

Blaðið er í „zine“ sniði, en því fylgir kasetta með lögum eftir þrettán hljóm­sveitir sem er fjallað um. Að baki blaðinu er Sólveig Matthildur Kristjáns­dóttir, úr Kælunni Miklu, og grafíski hönnuðurinn Kinnat Sóley Lydon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár