„Hamingjan er myndavél í höndunum mínum“

Ljós­mynd­ar­inn Owen Fiene seg­ist oft eiga erfitt með að koma orðum að hlut­unum. Mynda­vélin hjálpar honum að segja sögur og lifa í augna­blik­inu.

„Hamingjan er myndavél í höndunum mínum“
Owen Fiene Owen flutti til lands­ins eftir heim­sókn árið 2012. Mynd: Owen Fiene

Owen Fiene, ljós­mynd­ari frá Chicago í Banda­ríkj­unum sem flutt­ist til Íslands eftir að hafa kynnst kon­unni sinni í heim­sókn árið 2012, segir áhuga­mál sitt og starf hafa hjálpað sér að nálg­ast ham­ingj­una.

„Ham­ingjan er mynda­vél í hönd­unum mínum,“ segir Owen. „Að fanga og skapa augna­blik sem ég get nálg­ast og deilt með fólki síðar. Lengi vel átti ég erfitt með að sætta mig við augna­blikin sem tap­ast. Ég eyddi miklum tíma af æsku minni í að þrá það að deila upp­lif­unum sem ég átti með vinum og fjöl­skyldu. Ég var – og er lík­lega enn – mjög með­virkur. Mér leið oft eins og upp­lif­anir mínar væru ekki heilar ef ég var einn.“

Fangar augna­blikiðOwen segir ljós­myndun hjálpa sér að deila upp­lif­unum með þeim sem standa honum næst.

Owen seg­ist líka oft eiga erfitt með að koma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár