Stærsta bókaútgáfa Íslands seld til sænskrar hljóðbókaveitu

Tímamót eru orðin í bóka­út­gáfu á Íslandi, nú þegar Forlagið hefur verið selt til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Storytel að meiri­hluta.

Stærsta bókaútgáfa Íslands seld til sænskrar hljóðbókaveitu
Við und­ir­ritun Fyrir miðið er Egill Örn Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins.

„Íslend­ingar eru mikil bóka­þjóð og við erum sann­færð um að þetta muni reyn­ast mikið gæfu­spor fyrir íslenskan bóka­markað,“ segir Jonas Tellander, for­stjóri og stofn­andi sænsku hljóð­bóka­veit­unnar Storytel, sem hefur keypt 70 pró­sent í stærstu bóka­út­gáfu Íslands, For­lag­inu. 

Til­kynn­ing þess efnis var send fjöl­miðlum rétt í þessu.

Selj­and­inn, bók­mennta­fé­lagið Mál og menn­ing, mun áfram fara með 30 pró­sent hlut í félag­inu sem mun starfa áfram sem sjálf­stætt bóka­for­lag, aðskilið frá streym­isveitu Storytel á Íslandi. Kaup­and­inn, Storytel AB, móð­ur­fé­lag Storytel á Íslandi, hefur hefur áður keypt þrjú önnur nor­ræn útgáfu­fé­lög: Nor­stedts För­lags­grupp í Svíþjóð, People’s Press í Danmörku og Gummerus Publ­is­hers í Finn­landi. 

„Það má því segja að sam­band Storytel og For­lags­ins sé í raun fjár­fest­ing íslenskrar útgáfu í fram­tíð­inni,“ segir Halldór Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Máls og menn­ingar. „Kaupin munu tryggja áfram­hald­andi útgáfu á íslenskum bók­mennta­perlum og gera okkur kleift að styðja betur við nýja höf­unda. Mál og menn­ing mun í þessu skyni nýta stóran hluta kaup­verðs­ins til stofn­fjár sjóðs sem mun hafa það hlut­verk að efla íslenskar bók­menntir með stuðn­ingi við rit­höf­unda og bóka­verslun.“

Í frétta­til­kynn­ing­unni kemur fram að Forlagið muni fara í gegnum sam­bæri­legt ferli og aðrar bóka­út­gáfur í eigu Storytel á Norð­ur­lönd­unum. Nánari kynn­ing á því verður á blaða­manna­fundi klukkan eitt í dag. 

Áskrift að Storytel býður hlustun og/eða lestur á yfir hálfri milljón titla á heims­vísu. Fram­tíð­ar­sýn Storytel er „að efla sam­kennd og gera heim­inn að meira skap­andi stað með góðum sögum, sem hægt er að njóta hvar og hvenær sem er.“

Dótt­ur­fyr­ir­tækið Ztory býður einnig upp á ótak­mark­aðan lestur staf­rænna tíma­rita. Fyr­ir­tækið starfar á 20 mörk­uðum víðs­vegar um heim­inn og höf­uð­stöðvar þess eru stað­settar í Stokk­hólmi.  

Forlagið var stofnað árið 2007 þegar Mál og menn­ing keypti útgáfu­hluta Eddu og sam­ein­að­ist útgáfu­fé­lag­inu JPV. Mál og menn­ing hefur verið aðal­eig­andi For­lags­ins, með 87 pró­sent hlut. 13 pró­sent félags­ins hafa verið í eigu Egils Arnar Jóhanns­sonar, fram­kvæmda­stjóra félags­ins.

Samkvæmt síð­asta upp­gefna árs­reikn­ingi, sem gildir fyrir árið 2018, voru 40 starfs­menn hjá For­lag­inu og tap­aði félagið 4,4 millj­ónum króna það ár, en 13,3 millj­ónum króna árið áður. Á síð­asta ári, 2019, höfðu hins vegar lög um stuðn­ing við bóka­út­gáfu tekið gildi. Þau fólu í sér end­ur­greiðslu á 25 pró­sent beins kostn­aðar við útgáfu bóka á íslensku. Ekki hefur enn verið gefin upp rekstr­ar­nið­ur­staða síð­asta árs.

Eft­ir­far­andi er frétta­til­kynn­ingin í heild:

Storytel eignast meirihluta í Forlaginu 

Storytel AB, móð­ur­fé­lag Storytel á Íslandi, hefur keypt 70% hlut í stærstu bóka­út­gáfu lands­ins, For­lag­inu. Selj­and­inn, bók­mennta­fé­lagið Mál og menn­ing, mun áfram fara með 30% hlut í félag­inu sem mun starfa áfram sem sjálf­stætt bóka­for­lag, aðskilið frá streym­isveitu Storytel á Íslandi. Forlagið bæt­ist þannig í hóp þriggja ann­arra nor­rænna útgáfu­fé­laga í eigu Storytel AB, Nor­stedts För­lags­grupp í Svíþjóð, People’s Press í Danmörku og Gummerus Publ­is­hers í Finn­landi. 

Forlagið er ein virtasta bóka­út­gáfa lands­ins og á Norð­ur­lönd­unum og jafn­framt sú stærsta hér á landi. Félagið var stofnað árið 2007 af Jóhanni Páli Valdi­mars­syni, Agli Erni Jóhanns­syni og bók­mennta­fé­lagi Máls og menn­ingar sem hefur farið með ráð­andi hlut frá árinu 2017. Forlagið gefur árlega út um 150 titla, marga hverja eftir virt­ustu höf­unda lands­ins. Félagið hefur allt frá stofnun gegnt mik­il­vægu hlut­verki í bók­mennta­sam­fé­lag­inu og reynst öfl­ugur málsvari íslenskra rit­höf­unda á erlendum vett­vangi.

-Við erum gríð­ar­lega ánægð með þessa nýj­ustu við­bót við Storytel fjöl­skyld­una og öfl­ugt net útgáfu­fé­laga okkar á norð­ur­lönd­unum. Forlagið sómir sér þar vel meðal virtra félaga á borð við Nor­stedts För­lags­grupp, Gummerus Publ­is­hers og People’s Press. Við erum spennt að hefja sam­starf með reynslu­miklum útgef­endum For­lags­ins sem deila ástríðu okkar fyrir góðum sögum, segir Jonas Tellander, for­stjóri og stofn­andi Storytel. 

-Íslend­ingar eru mikil bóka­þjóð og við erum sann­færð um að þetta muni reyn­ast mikið gæfu­spor fyrir íslenskan bóka­markað. Þekking Storytel á staf­rænni þróun ásamt öfl­ugri reynslu For­lags­ins í bóka­út­gáfu mun stór­auka aðgengi lands­manna að vönd­uðum bók­menntum og kaupin munu treysta sér­stöðu beggja félaga enn frekar, segir Jonas.

Forlagið og Storytel á Íslandi munu starfa sjálf­stætt áfram eftir kaupin og stefna For­lags­ins verður áfram sú að efla íslenska útgáfu og stuðla að því að raddir íslenskra rit­höf­unda ber­ist sem víð­ast.

-Forlagið byggir á ald­ar­gam­alli hefð útgef­enda sem hafa gert það að ævi­starfi sínu að koma íslenskum bók­menntum á fram­færi. Við erum afskap­lega ánægð og hlökkum til sam­starfs­ins með Storytel sem er kraft­mikið nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki á sviði staf­rænnar útgáfu. Sam­starfið mun opna margar dyr fyrir höf­undum For­lags­ins og færa okkur skrefi nær inn í fram­tíð­ina og nær nútíma les­endum og hlust­endum, segir Egill Örn Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins.

-Kaupin munu styrkja rekstr­ar­grunn For­lags­ins og tryggja for­ystu í staf­rænni þróun til fram­tíðar. Þetta skref rammar einnig vel inn fram­tíð­ar­sýn félags­ins sem snýr að því að gefa út bestu verk íslenskra bók­mennta og gera þau aðgengi­leg öllum les­endum, hvaðan og hvernig sem þeir vilja njóta þeirra, segir Egill Örn.

-Við erum sann­færð um að ávinn­ing­ur­inn verður mik­ill fyrir íslenska les­endur, hlust­endur og höf­unda. Þegar litið er til þró­unar útgáfu á alþjóð­legum vett­vangi blasir við að sam­starf við öfl­ugan útgef­anda og dreif­ing­ar­að­ila sem byggir á traustum staf­rænum grunni mun tryggja fjöl­skrúð­ugt bók­mennta­líf á Íslandi til fram­tíðar. Það má því segja að sam­band Storytel og For­lags­ins sé í raun fjár­fest­ing íslenskrar útgáfu í fram­tíð­inni. Kaupin munu tryggja áfram­hald­andi útgáfu á íslenskum bók­mennta­perlum og gera okkur kleift að styðja betur við nýja höf­unda. Mál og menn­ing mun í þessu skyni nýta stóran hluta kaup­verðs­ins til stofn­fjár sjóðs sem mun hafa það hlut­verk að efla íslenskar bók­menntir með stuðn­ingi við rit­höf­unda og bóka­verslun, segir Halldór Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Máls og menn­ingar.  

Velta For­lags­ins var um 8 millj­ónir evra árið 2019 (1100 millj­ónir ISK). Samn­ings­að­ilar hafa sam­mælst um að kaup­verðið sem verður stað­greitt, verði ekki gefið upp. Samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár