Skemmtilegar gönguleiðir á Vesturlandi

Tomasz Þór Veruson göngu­garpur segir mik­il­vægt að und­ir­búa göngu­ferðir vel.

Á Vest­ur­landi er mikið um skemmti­legar leiðir sem hægt er að ganga og ættu allir að finna göngu við sitt hæfi. Tomasz Þór Veruson, göngu­garpur hjá Tindar Travel, sagði Stund­inni frá tveimur leiðum og minnir á að vera með allan útbúnað á hreinu, góða skó og bak­poka og að skilja alltaf eftir ferða­á­ætlun.

Tomasz Þór VerusonHann mælir með því að taka hring um Hafn­ar­fjall, leið sem marg­verð­launi göngugarpa með útsýn­inu.

Hringur um Hafn­ar­fjall – lengri og meira krefj­andi

Leiðin er um 13 km löng með 1.100 m hækkun. Hún fer um alla tinda Hafn­ar­fjalls og á góðum degi verð­launar hún aftur og aftur með frá­bæru útsýni. Leiðin hefst á sama bíla­stæði og þegar gengið er upp á fyrsta tind Hafn­ar­fjalls. Eftir það er haldið áfram eftir endi­löngu fjall­inu, eftir toppum og hryggjum þangað til maður kemur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðasumarið 2020

NærmyndFerðasumarið 2020

Gleymdi garður töfra­manns­ins i Tungudal

Á Ísafirði er að finna fal­inn högg­mynda­garð ljós­mynd­ar­ans, lista­manns­ins og töfra­manns­ins Martinus Simson sem var danskur og sett­ist að á Íslandi árið 1916. Simsons-garður er stað­settur í Tungudal þar sem Simson fékk úthlut­aða lóð á þriðja ára­tugnum en í dag liggur garð­ur­inn í órækt, fal­inn minn­is­varði um merki­legan og list­rænan ein­stak­ling með ástríðu fyrir skóg­rækt á Íslandi.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár