Bæjarstjóri Seltjarnarness vill að stjórnvöld stöðvi gönguljós við Eiðsgranda

Göngu­þver­anir við götu sem leiðir umferð til Sel­tjarn­ar­ness eru til marks um „yfir­gang af hálfu Reykja­vík­ur­borgar“ segir Ásgerður Hall­dórs­dóttir bæj­ar­stjóri. Bæj­ar­full­trúar hafa áður gagn­rýnt borg­ina fyrir að setja strætó­stoppi­stöð á leið­inni.

Bæjarstjóri Seltjarnarness vill að stjórnvöld stöðvi gönguljós við Eiðsgranda
Ásgerður Hall­dórs­dóttir Bæj­ar­stjóri segir þrengt að stofn­brautum á leið til Sel­tjarn­ar­ness.

Ásgerður Hall­dórs­dóttir, bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi, vill að stjórn­völd grípi inn í áætl­anir Reykja­vík­ur­borgar um göngu­ljós við Eiðs­granda. Hún telur borg­ina „með­vitað og ítrekað að þrengja að aðgengi að Sel­tjarn­ar­nesi“ með því að lækka hámarks­hraða, setja upp stoppi­stöðvar stræt­is­vagna og breyta gatna­mótum í mið­borg­inni.

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, borg­ar­full­trúi og for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs, greindi frá því í blað­inu fyrir helgi að borgin hygð­ist leggja sex ljósa­stýrðar göngu­þver­anir yfir Eiðs­granda, aðra af tveimur götum sem leiða umferð frá Reykja­vík til Sel­tjarn­ar­ness. Bæj­ar­full­trúar hafa áður gagn­rýnt borg­ina fyrir að setja stoppi­stöð án útskots við tví­breiðu göt­una Geirs­götu í mið­borg­inni. Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, kall­aði einnig fram­kvæmd­ina „eins konar hryðju­verk gegn fjöl­skyldu­bílnum“.

„Við upp­lifum þetta sem yfir­gang af hálfu Reykja­vík­ur­borgar,“ segir Ásgerður. „Stjórn­völd verða að grípa inn í og tryggja að ekki verði hróflað við þjóð­vegum og stofn­brautum nema með sam­þykki og í góðri sátt við þau sveit­ar­fé­lög sem hags­muna hafa að gæta.“

„Reykja­vík­ur­borg er með­vitað og ítrekað að þrengja að aðgengi að Sel­tjarn­ar­nesi“

Hún segir Sel­tjarn­ar­nes í varn­ar­bar­áttu með sam­göngu­mál til og frá bænum. „Við getum ekki á neinn hátt sætt okkur við að ítrekað og án sam­ráðs sé þrengt að okkar stofn­brautum,“ segir hún. „Í ljósi þessa hef ég óskað eftir fundi með for­stjóra Vega­gerð­ar­innar til að ræða þessi mál. Reykja­vík­ur­borg er með­vitað og ítrekað að þrengja að aðgengi að Sel­tjarn­ar­nesi. Er það meðal ann­ars gert með lækkun á hámarks­hraða á Hring­braut niður í 40 km/klst, leng­ingu á ferða­tíma fólks með ósam­stilltum ljósum, strætó­stoppi­stöð á miðri Geirs­götu og breyt­ingu á gatna­mótum Lækj­ar­götu og Geirs­götu. Ég skil ekki þetta sam­ráðs­leysi. Við viljum öll tryggja gott flæði á götum, skapa öryggi fyrir gang­andi og hjólandi ásamt því að tryggja gott aðgengi fyrir slökkvi- og sjúkra­bíla ef til rým­ingar kemur. Samráð og sam­vinna skiptir öllu máli fyrir þá sem búa í Vesturbæ Reykja­víkur og á Sel­tjarn­ar­nesi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár