Rúmlega 500 milljarða kvóti mun renna til erfingja aldinna eigenda 14 stórútgerða

Meiri­hluti hluta­bréfa í 14 af 20 stærstu útgerðum Íslands er í eigu ein­stak­linga 60 ára eða eldri. Framsal hluta­bréfa eig­enda Samherja til barna sinna er því bara eitt dæmi af mörgum sam­bæri­legum til­fellum sem munu eiga sér stað með kyn­slóða­skiptum í eign­ar­haldi á íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. Fosæt­is­ráð­herra segir málið sýna mik­il­vægi þess að setja auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá svo afnota­réttur á kvóta geti ekki erfst kyn­slóð fram af kyn­slóð.

Rúmlega 500 milljarða kvóti mun renna til erfingja aldinna eigenda 14 stórútgerða
Eig­end­urnir á aldr­inum 72 til 82 ára Eigendur meiri­hluta hluta­fjár í Skinney Þinga­nesi á Höfn i Horna­firði eru á aldr­inum 72 til 82 ára. Þeir sjást hér með Aðal­steini Ing­ólfs­syni, fram­kvæmda­stjóra Skinn­eyjar. Við hlið hans er Ingólfur Ásgríms­son, Ing­valdur Ásgeirs­son, Gunnar Ásgeirs­son og Birgir Sig­urðs­son en fjór­menn­ing­arnir eiga meiri­hluta í Skinney.

Ráðandi hlut­hafar í fjórtán af tutt­ugu stærstu útgerð­ar­fé­lögum lands­ins eru  60 ára gamlir eða eldri. Um er að ræða fyr­ir­tæki sem ráða beint yfir tæp­lega 48 pró­sentum íslenska fisk­veiði­kvót­ans. Áætlað mark­aðsvirði kvóta þess­ara útgerð­ar­fyr­ir­tækja, miðað við hóf­legt upp­lausn­ar­verð á mark­aði, 2.300 krónur fyrir hvert kíló, er rúm­lega 518 millj­arðar króna.

Með tíð og tíma mun afnota­rétt­ur­inn af þessum kvóta, sem er ígildi eign­ar­réttar þar sem eig­endur útgerð­anna geta selt kvót­ann og veð­sett hann, erf­ast til erf­ingja núver­andi eig­enda þeirra útgerða sem ráða yfir þessum afla­heim­ildum. 

Kyn­slóða­skipti eru því að eiga sér stað í eign­ar­haldi á stór­út­gerð­unum í íslenskum sjáv­ar­út­vegi þegar eig­end­urnir, sem flestir eru fæddir á sjötta ára­tug síð­ustu aldar, eru að kom­ast á aldur. Þetta eru eig­end­urnir sem bjuggu þessar íslensku stór­út­gerðir til þegar íslenska kvóta­kerfið var að taka á sig mynd og Íslend­ingar voru að læra að stunda ábyrga fisk­veiði­stjórnun.

Í mörgum til­fellum er um að ræða fólk …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kvótinn

Sagan af vélstjóranum í Eyjum sem gagnrýndi kvótakerfið: „Ég var talinn óalandi og óferjandi.“
FréttirKvótinn

Sagan af vél­stjór­anum í Eyjum sem gagn­rýndi kvóta­kerfið: „Ég var tal­inn óalandi og óferj­andi.“

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið stendur á tíma­mótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eign­ar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­ver­andi starfs­maður Ísfé­lags­ins, Árni Marz Frið­geirs­son, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrif­aði í DV um kvóta­kerfið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár