Hringt inn í Kaup­höll­ina Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og Stefán Frið­riks­son, for­stjóri Ísfé­lags­ins, hringdu fyr­ir­tækið inn í Kauphöll Íslands þann 8. des­em­ber þegar við­skipti hófust með bréf þess. Aðrir á mynd­inni eru frá vinstri: Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hall­ar­innar, Ólafur Mart­eins­son, hlut­hafi í Ísfé­lag­inu, sem kenndur er við útgerð­ina Ramma á Siglu­firði, Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfé­lags­ins, og Einar Sig­urðs­son, stjórn­ar­maður og sonur Guð­bjargar.

Ættarveldi Guðbjargar og átökin um Eyjar og Ísland

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, útgerð­ar­kona í Vest­manna­eyjum, hefur í rúm 20 ár átt og stýrt Ísfé­lag­inu í bænum sem nú er búið að skrá í Kauphöll Íslands. Eig­in­maður Guð­bjargar, Sigurður Ein­ars­son, lagði grunn að ætt­ar­veld­inu áður en hann lést árið 2000. Nú eru synir þeirra fjórir orðnir stærstu hlut­hafar útgerð­ar­innar.

Með skrán­ingu Ísfé­lags­ins á markað í Kauphöll Íslands lýkur ára­löngu tíma­bili þar sem þetta stærsta útgerð­ar­fé­lag Vest­manna­eyja er í meiri­hluta­eigu einnar fjöl­skyldu sem kennd er við Guð­björgu Matth­í­as­dóttur. Þetta er saga sem hægt er að rekja tæp 100 ár aftur í tím­ann og hún er ekki á enda þó svo hún taki breyt­ingum, því fjöl­skyldan er enn þá langstærsti hlut­haf­inn. 

Mat Eyja­manna sem Heim­ildin hefur rætt við um skrán­ingu Ísfé­lags­ins á markað er jákvætt af ýmsum ástæðum. „Flestir í Eyjum telja það jákvæðan hlut að Ísfé­lagið sé að fara á markað og að ægi­vald einnar fjöl­skyldu yfir því, og ægi­vald einnar fjöl­skyldu yfir bænum, ætti að heyra sög­unni til. Þessu fylgir ákveð­inn léttir því þá eru minni líkur á að félag­inu verði beitt í ein­hverjum óeðli­legum póli­tískum til­gangi,“ segir einn af við­mæl­endum Heim­ild­ar­innar sem búsettur er í Vest­manna­eyjum. Við­kom­andi vill ekki koma fram undir nafni. 

Gamla sagan um útgerðirnar …

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Sig­urð­ur Ein­ars­son, lagði grunn að ætt­ar­veld­inu"
    Hér virðist eitthvað skorta á söguþekkingu. Faðir Sigurðar, "Einar ríki" lagði grunninn.
    2
    • MGÁ
      Marteinn Gísli Árnason skrifaði
      Nei það voru Matthias og fru sem það gerðu þ.e. faðir og moðir Guðbjargar.
      "Einar riki" og Sigurður sonur hans mætir menn en Matthias sa við þeim a eftirminnan
      legan hatt þetta ættu allir að vita,sem þekkja söguna frægu.
      0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Sigurður Einarsson var einstakur og góður maður!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvótinn

Sagan af vélstjóranum í Eyjum sem gagnrýndi kvótakerfið: „Ég var talinn óalandi og óferjandi.“
FréttirKvótinn

Sagan af vél­stjór­anum í Eyjum sem gagn­rýndi kvóta­kerfið: „Ég var tal­inn óalandi og óferj­andi.“

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið stendur á tíma­mótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eign­ar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­ver­andi starfs­maður Ísfé­lags­ins, Árni Marz Frið­geirs­son, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrif­aði í DV um kvóta­kerfið.
Rúmlega 500 milljarða kvóti mun renna til erfingja aldinna eigenda 14 stórútgerða
ÚttektKvótinn

Rúmlega 500 millj­arða kvóti mun renna til erf­ingja ald­inna eig­enda 14 stór­út­gerða

Meiri­hluti hluta­bréfa í 14 af 20 stærstu útgerðum Íslands er í eigu ein­stak­linga 60 ára eða eldri. Framsal hluta­bréfa eig­enda Samherja til barna sinna er því bara eitt dæmi af mörgum sam­bæri­legum til­fellum sem munu eiga sér stað með kyn­slóða­skiptum í eign­ar­haldi á íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. Fosæt­is­ráð­herra segir málið sýna mik­il­vægi þess að setja auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá svo afnota­réttur á kvóta geti ekki erfst kyn­slóð fram af kyn­slóð.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár