Hvers á WHO að gjalda?

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) sætir harðri gagn­rýni af hálfu banda­rískra stjórn­valda sem saka stjórn­endur hennar um að ganga erinda Kínverja og sýna slaka frammi­stöðu í bar­átt­unni við Covid. Aðrir segja far­ald­ur­inn hafa leitt í ljós alla helstu veik­leika stofn­un­ar­innar og van­mátt hennar til að hafa raun­veru­leg áhrif á sótt­varna­stefnu aðild­ar­ríkj­anna. Þrátt fyrir mikla ábyrgð hefur WHO engin raun­veru­leg völd og er háð fjár­veit­ingum og duttl­ungum nokk­urra stórra ríkja.

Hvers á WHO að gjalda?
Donald Trump Segir meðal ann­ars að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin hafi gerst sek um ítrekuð mis­tök í COVID-heims­far­aldr­inum Mynd: Brendan Smialowski / AFP

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (World Health Organization eða WHO) er sjálf­stæð ein­ing innan vébanda Sam­ein­uðu þjóð­anna og hefur starfað sam­kvæmt alþjóð­legum sátt­mála frá 1948. Tedros Adhanom, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra Eþíópíu, hefur verið fram­kvæmda­stjóri frá 2017 og er hann fyrsti Afr­íku­bú­inn til að gegna emb­ætt­inu. 

Mót­fram­bjóð­andi hans var breskur læknir sem naut stuðn­ings Breta, Banda­ríkja­manna og margra vest­rænna ríkja en Afr­íku­sam­bandið og Asíu­ríkin studdu Tedros sem náði meiri­hluta í kjör­inu eftir harða kosn­inga­bar­áttu.

Tortryggður frá upphafi

Vestrænu ríkin hafa ráðið mestu um starf­semi WHO frá stofnun og þótti kjör Tedros marka nokkur þátta­skil hvað það varðar. Þarna varð breskur fram­bjóð­andi undir, ekki síst fyrir til­stilli Kínverja, sem nú eru farnir að beita sér með sama hætti og Banda­ríkja­menn hafa lengi gert innan stofn­un­ar­innar. Ljóst var að mörg Asíuríki myndu kjósa með Kín­verjum og tryggði það sig­ur­inn að lokum. Nýi fram­kvæmda­stjór­inn var fyrir vikið tor­tryggður af Bretum og Banda­ríkja­mönnum strax frá upp­hafi. 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár